Bankaráð Landsbankans hefur ákveðið að höfða mál fyrir dómstólum vegna sölunnar á eignarhlut bankans í Borgun hf. á árinu 2014. Það er mat bankaráðs að bankinn hafi farið á mis við fjármuni í viðskiptunum þar sem bankanum voru ekki veittar nauðsynlegar upplýsingar.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Landsbankanum.
Forsaga málsins er sú að í nóvember 2014 var 31,2% hlutur Landsbankans í félaginu Borgun hf. seldur til félagsins Borgun slf., en eigendur þessu eru félagið Orbis Borgunar slf., Stálskip ehf., P126 ehf. sem er í eigu Einars Sveinssonar í gegnum móðurfélagið Charamino Holdings Limited sem skráð er á Lúxemborg.
Þá á félagið Pétur Stefánsson ehf. einnig hlut í Borgun slf., en forsvarsmaður þess er Sigvaldi Stefánsson. Söluverðmæti hlutarins var 2.184 milljónir. Gagnrýnt var að félagið hefði ekki farið í opið söluferli. Í janúar 2016 var upplýst að Borgun auk Valitors myndi hagnast verulega vegna yfirtöku Visa international á Visa Europe. Sagði Morgunblaðið að um væri að ræða samtals á annan milljarð.
Þá komst Fjármálaeftirlitið að þeirri niðurstöðu í mars að verklagi Landsbankans við sölu á eingarhlut sínum í Borgun árið 2014 hefði verið áfátt og heilt á litið ekki til þess fallið að skila bestri niðurstöðu fyrir bankann.
Uppfært klukkan 15:55: Samkvæmt upplýsingum frá Landsbankanum er ekki búið að gefa út stefnu í málinu. Málið er í höndum lögfræðinga og mun Landsbankinn ekki tjá sig frekar um það að svo stöddu.