Spennumyndin Eiðurinn í leikstjórn Baltasars Kormáks verður frumsýnd á Íslandi 9. september og á kvikmyndahátíð í Toronto sömu helgi. Síðustu 70 daga hefur RVK Studios birt skemmtilegar myndir að tjaldabaki á Instagram-síðu sinni. Myndirnar eru teknar af Lilju Jónsdóttur en þær verða til sýnis á ljósmyndasýningu í Gym & Tonic-salnum á Kex Hostel á Menningarnótt.

Hægt er að fylgjast með RVK Studios á Instagram en birtar verða myndir alveg fram að frumsýningu.
Frétt mbl.is - Ný stikla úr Eiðinum komin út
Myndin Eiðurinn segir frá hjartaskurðlækninum Finni sem þykir skara fram úr í starfi sínu. Þegar hann áttar sig á að dóttir hans er komin í neyslu og kynnir þekktan dópsala fyrir fjölskyldunni sem nýja kærastann koma fram brestir í einkalífinu. Finnur ákveður að taka í taumana og er staðráðinn í að koma dótturinni á réttar kjöl, hvað sem það kostar.
Auk þess að leikstýra og framleiða myndina leikur Baltasar aðalhlutverkið. Hera Hilmarsdóttir leikur dótturina Önnu og Gísli Örn Garðarsson er í hlutverki kærastans. Handritið er byggt á upprunalegri sögu Ólafs Egils Egilssonar en er skrifað af þeim Ólafi og Baltasar.