Fá ráðgjöf vegna hlutarins í Borgun

Borgun | 19. september 2016

Fá ráðgjöf vegna hlutarins í Borgun

Íslandsbanki hefur ráðið alþjóðlega ráðgjafafyrirtækið Corestar Partners ásamt fyrirtækjaráðgjöf bankans til ráðgjafar í tengslum við mótun framtíðarstefnu um eignarhlut bankans í Borgun.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Íslandsbanka.

„Corestar Partners sérhæfir sig í fyrirtækjaráðgjöf á sviði greiðsluþjónustu og er með starfsstöðvar í Sviss og Þýskalandi.  Möguleg niðurstaða ráðgjafarvinnunnar er að bankinn selji eignarhlut sinn í félaginu og færi slík sala þá fram í opnu og gagnsæju söluferli.

Íslandsbanki á 63,5% hlut í Borgun og er félagið flokkað sem dótturfélag bankans. Hreinar rekstrartekjur Borgunar voru um 4,7 milljarðar króna á árinu 2015 og hagnaður um 1,5 milljarðar króna. Samsvarar það um 10% af rekstrartekjum bankans og rúmlega 7% hagnaðar á því tímabili,“ segir í tilkynningunni.

mbl.is