Þau sem ákærð voru í markaðsmisnotkunarmáli Kaupþings þurfa samanlagt að greiða 67,2 milljónir í sakarkostnað fyrir Hæstarétti. Samtals er sakarkostnaður í málinu fyrir bæði héraðsdómi og Hæstarétti kominn í um 340 milljónir.

Frétt mbl.is: Allir sakfelldir í Kaupþingsmáli
Þau sem voru dæmd í málinu voru Hreiðar Már Sigurðsson, fyrrverandi forstjóri bankans, Sigurður Einarsson, fyrrverandi stjórnarformaður bankans, Magnús Guðmundsson, fyrrverandi forstjóri Kaupþings í Lúxemborg, Ingólfur Helgason, fyrrverandi forstjóri Kaupþings á Íslandi, Einar Pálmi Sigmundsson, fyrrverandi forstöðumaður eigin viðskipta Kaupþings, Birnir Sær Björnsson og Pétur Kristinn Guðmarsson, starfsmenn eigin viðskipta, Bjarki Diego, fyrrverandi framkvæmdastjóri útlána Kaupþings, og Björk Þórarinsdóttir, fyrrverandi lánafulltrúi í lánanefnd bankans.
Hreiðar Már var dæmdur til að greiða tæplega 13 milljónir í málsvarnarlaun. Sigurður þarf að greiða 6,5 milljónir, Ingólfur 16,7 milljónir, Einar Pálmi 5,3 milljónir, Birnir og Pétur hvor sínar 6,3 milljónir, Bjarki 5,6 milljónir, Magnús 2,5 milljónir og Björk 1,4 milljón. Ríkissjóður greiðir hins vegar þrjá fjórðu hluta málsvarnarlauna fyrir Magnús og Björk, samtals um 11,7 milljónir. Þá þurfa ákærðu að greiða 3,6 milljónir óskipt í annan áfrýjunarkostnað, en Magnús og Björk fjórðung hvort.
Fyrir höfðu ákærðu verið dæmd til að greiða 165,6 milljónir í málsvarnarkostnað og ríkið 97,2 milljónir.
Samtals er því sakarkostnaður í þessu máli kominn upp í um 340 milljónir króna.
Hreiðar Már og Ingólfur þurfa að greiða hæstu upphæðina í sakarkostnað, en heildarhlutur þeirra er á bilinu 44-45 milljónir hvors.