Ófærð hlaut verðlaun í Berlín

Sjónvarpsþátturinn Ófærð | 21. október 2016

Ófærð hlaut verðlaun í Berlín

Sakamálasería Baltasars Kormáks, Ófærð, hlaut í dag Prix Europa verðlaunin en þau voru afhent í Berlín. Verðlaunin sem Ófærð hlaut voru í flokknum „Besta evrópska dramaþáttaserían“ en í tilkynningu frá RVK Studios kemur fram að áður hefur m.a. Brúin unnið þessi verðlaun.

Ingvar E. Sigurðsson, Ólafur Darri og Ilmur Kristjánsdóttir í hlutverkum …
Ingvar E. Sigurðsson, Ólafur Darri og Ilmur Kristjánsdóttir í hlutverkum sínum í Ófærð. Stilla úr Ófærð

Sakamálasería Baltasars Kormáks, Ófærð, hlaut í dag Prix Europa verðlaunin en þau voru afhent í Berlín. Verðlaunin sem Ófærð hlaut voru í flokknum „Besta evrópska dramaþáttaserían“ en í tilkynningu frá RVK Studios kemur fram að áður hefur m.a. Brúin unnið þessi verðlaun.

Sakamálasería Baltasars Kormáks, Ófærð, hlaut í dag Prix Europa verðlaunin en þau voru afhent í Berlín. Verðlaunin sem Ófærð hlaut voru í flokknum „Besta evrópska dramaþáttaserían“ en í tilkynningu frá RVK Studios kemur fram að áður hefur m.a. Brúin unnið þessi verðlaun.

Alls 25 þáttaraðir voru tilnefndar til verðlaunanna og eru aðstandendur Ófærðar að vonum stoltir af heiðrinum enda um ein stærstu sjónvarpsverðlaun Evrópu. Prix Europa eru verðlaun EBU og Evrópusambandsins.

Ófærð var m.a. tekin á Siglufirði á síðasta ári og skartaði Ólafi Darra Ólafssyni, Ilmi Kristjánsdóttur og Ingvari Sigurðssyni í aðalhlutverkum. Hún er byggð á hugmynd Baltasars Kormáks en handritið var skrifað af þeim Sigurjóni Kjartanssyni og Clive Bradley. Framleiðendur eru Baltasar Kormákur og Magnús Viðar Sigurðsson hjá RVK Studios.

Ófærð var framleidd í samstarfi við RÚV. 

mbl.is