Lance Stroll verður á næsta ári ellefti nýliðinn til að hefja keppni í formúlu-1 hjá Williamsliðinu. Meðal forvera hans er landi hans Jacques Villeneuve sem er eini þessara sem hampað hefur heimsmeistaratign ökumanna í greininni.
Lance Stroll verður á næsta ári ellefti nýliðinn til að hefja keppni í formúlu-1 hjá Williamsliðinu. Meðal forvera hans er landi hans Jacques Villeneuve sem er eini þessara sem hampað hefur heimsmeistaratign ökumanna í greininni.
Lance Stroll verður á næsta ári ellefti nýliðinn til að hefja keppni í formúlu-1 hjá Williamsliðinu. Meðal forvera hans er landi hans Jacques Villeneuve sem er eini þessara sem hampað hefur heimsmeistaratign ökumanna í greininni.
Fyrsti nýliði Williams var Englendingurinn Jonathan Palmer en hann þreytti frumraun sína með liðinu í Evrópukappakstrinum 1983. Kom hann í mark í 13. sæti og var það eina keppnin hans með Williams.
Öllu lengur varð vist næsta nýliða, Skotans David Coulthard. Hann var vara- og þróunarökumaður er fluttist í sæti keppnismanns við andlát Ayrtons Senna, sem fórst í San Marinó-kappakstrinum í Imola 1994. Spánarkappaksturinn var fyrsta keppni Coulthard sem alls keppti 25 sinnum á tveimur árum. Besta árangri sínum náði hann í portúgalska kappakstrinum 1995 en þar fór hann með sigur af hólmi. Árið eftir fór hann til McLaren.
Button beint úr formúlu-3 í formúlu-1
Jacques Villeneuve leysti Coulthard af hólmi og ók í þrjú ár fyrir Williams. Varð hann annar í keppni ökumanna á fyrsta ári sínu, en liðsfélagi hans Damon Hill hampaði titlinum 1996. Frumraun sína þreytti Villeneuve í Ástralíu. Mót hans fyrir Williams urðu alls 49 og vann hann sigur í 11 þeirra. Titil ökumanna vann hann árið eftir, 1997.
Með frægari nýliðum er Jenson Button sem þreytti frumraun sína í Melbourne árið 2000, nýorðinn tvítugur. Besta árangri í mótunum 17 á jómfrúarárinu var fjórða sætið í þýska kappakstrinum í Hockenheim. Benetton, sem varð Renault árið 2002, gerði sér lítið fyrir og nældi í Button frá Williams. Hann varð svo heimsmeistari ökumanna með Brawnliðinu árið 2009.
Rosberg byrjaði hjá Williams
Eins og Villeneuve kom Juan Pablo Montoya til Williams sem meistari í bandarískri systurkeppni formúlu-1. Ók hann fyrir liðið í fjögur ár, 2001 til 2004. Mótin urðu 67 og vann hann fjögur þeirra.
Nýliði sem nú kveður mikið að í formúlunni og hóf keppni með Williams 2006 er Nico Rosberg. Dvaldi hann í herbúðum enska liðsins í fjögur ár en hefur keppt fyrir Mercedes frá 2010. Frumraun sína þreytti hann í Barein en árangurinn lét lengi á sér standa, enda Williamsbíllinn fremur ósamkeppnisfær á þessum tíma. Besta sæti hans í 70 mótum með Williams var annað sætið í Singapúr 2008.
Á þessum árum steig hver nýliðinn á fætur sín fyrstu skref í formúlunni með Williams. Árið 2007 Japaninn Kazuki Nakajima sem var í þrjú ár hjá liðinu og Nico Hülkenberg 2010. Fyrsta mót Nakajima af 36 var í Brasilíu 2007 og í Ástralíu á sömu keppnistíð varð hann sjötti í mark sem átti eftir að verða hans besta í keppni.
Maldonado síðasti sigurvegarinn
Hülkenberg hóf formúluferilinn í Barein og ók alls 19 sinnum fyrir Williams. Lengst náði hann í ungverska kappakstrinum, eða í sjötta sæti. Árið eftir hélt hann til Force India og annar nýliði tók við sæti hans, Pastor Maldonado. Sá ók í þrjú ár, alls 58 mót, og vann fyrsta mótssigur Willians um margra ára skeið í Barcelona vorið 2012.
Loks þreytti Valtteri Bottas frumraun sína í formúlu-1 með Williams fyrir þremur árum, í Melbourne 2013. Hann verður áfram í herbúðum Williams á næsta ári. Mótin hans eru orðin 75 og tvisvar hefur hann komið í mark í öðru sæti, sem er hans besta; í Silverstone otg Þýskalandi 2014.