Um 220 listamenn komu fram á tæplega 300 tónleikum á tónlistarhátíðinni Iceland Airwaves sem fór fram um helgina, en tónleikagestir voru um 9.000 talsins. „Allt gekk bara rosalega vel,“ segir Henný María Frímannsdóttir, upplýsingafulltrúi hátíðarinnar, í samtali við mbl.is.

Erfitt er að segja til um hvað stóð upp úr á hátíðinni í ár enda ótalmargt á boðstólum. Fjöldi lítt sem betur þekktra erlendra og íslenskra listamanna kom fram á hátíðinni og má þar meðal annars nefna bandarísku sveitirnar Warpaint og The Internet og íslensku sveitina Of Monsters and Men.
Þá ríkti mikil eftirvænting fyrir tónleikum Bjarkar Guðmundsdóttur, sem kom fram á hátíðinni í gær. „Það var pakkuppselt og fólk alveg gríðarlega ánægt,“ segir Henný um tónleika Bjarkar, en söngkonan heldur aðra tónleika í Hörpu á þriðjudaginn og eru örfáir miðar eftir nú þegar fréttin er skrifuð.
Fyrirkomulag hátíðarinnar í ár var með svipuðu móti og hefur verið undanfarin ár og fjöldi gesta sömuleiðis. Hátíðin er þó ekki alveg á enda, en nokkrir tónleikar eru á dagskrá í kvöld. Þar má nefna stórtónleika PJ Harvey í Valshöllinni og íslensku sveitina Agent Fresco, sem er nýkomin heim af löngu tónleikaferðalagi og treður upp á skemmtistaðnum Húrra.
Að sögn Hennýar er það upplifun aðstandenda hátíðarinnar að almenn ánægja hafi verið meðal tónleikagesta og listamanna.
„Fólk hefur verið bara ákaflega ánægt með áhorfendur og þykir bara gaman að vera í Reykjavík. Tónlistarmenn hafa líka verið duglegir að fara á tónleika hjá öðrum böndum,“ segir Henný um upplifun erlendra listamanna sem komu fram á hátíðinni.