Bieber kýldi aðdáanda

Justin Bieber | 23. nóvember 2016

Bieber kýldi aðdáanda

Ungstirnið Justin Bieber kýldi karlkyns aðdáanda fyrir tónleika sína í Barcelona í gær, með þeim afleiðingum að vör hans sprakk.

Bieber kýldi aðdáanda

Justin Bieber | 23. nóvember 2016

Justin Bieber kýldi aðdáanda sinn í gær með þeim afleiðingum …
Justin Bieber kýldi aðdáanda sinn í gær með þeim afleiðingum að vör hans sprakk. AFP

Ungstirnið Justin Bieber kýldi karlkyns aðdáanda fyrir tónleika sína í Barcelona í gær, með þeim afleiðingum að vör hans sprakk.

Ungstirnið Justin Bieber kýldi karlkyns aðdáanda fyrir tónleika sína í Barcelona í gær, með þeim afleiðingum að vör hans sprakk.

Atvikið átti sér stað fyrir utan Palau Sant Jordi-höllina, þar sem tónleikarnir fóru fram.

Bieber var farþegi í bifreið sem ekið var í átt að tónleikastaðnum, en hann hafði skrúfað niður rúðuna og var að heilsa upp á aðdáendur.

Ungur maður vildi ná tali af stjörnunni, elti bílinn og rétti hönd sína inn um gluggann. Bieber brást við með því að kýla aðdáandann, sem var síðan skilinn eftir blóðugur í framan.

TMZ greindi frá atvikinu, og birti jafnframt myndband af því. Myndbandið má sjá hér að neðan.

mbl.is