SPRON-málið svokallaða er komið á dagskrá Hæstaréttar þann 11. janúar á næsta ári. Í málinu voru stjórn og sparisjóðsstjóri SPRON ákærð fyrir umboðssvik vegna tveggja milljarða lánveitingu til félagsins Exista þann 30. september 2008.

Allir ákærðu voru aftur á móti sýknaðir í héraðsdómi í júní á síðasta ári og sagði í dómnum að ekkert benti til þess að stjórnarmennirnir hefðu látið hjá líðast að afla upplýsinga um greiðslugetu eða eignastöðu félagsins við lánveitinguna eins og saksóknari hélt fram.
Þau sem voru ákærð í málinu voru fyrrverandi stjórnarmennirnir, þau Ari Bergmann Einarsson, Jóhann Ásgeir Baldurs, Margrét Guðmundsdóttir og Rannveig Rist, sem og fyrrverandi sparissjóðstjóri SPRON, Guðmundur Örn Hauksson.
Sérstakur saksóknari taldi að þau hefðu misnotað aðstöðu sína og stefnt fé sparisjóðsins í verulega hættu þegar þau samþykktu á stjórnarfundi þann 30. september 2008 að veita Exista tveggja milljarða króna peningamarkaðslán án trygginga og án þess að leggja mat á greiðslugetu og eignastöðu Exista í samræmi við útlánareglur.
„Fyrir liggur að Exista hf. var fyrirtæki sem skráð var á markað og bar upplýsingaskyldu sem slíkt. Þá liggur einnig fyrir að Exista hf. hafði fyrr á sama ári fengið peningamarkaðslán hjá SPRON og þannig verið metið hæft til að eiga í slíkum viðskiptum við sparisjóðinn. Að síðustu lá fyrir að innan sparisjóðsins var fyrir hendi veruleg þekking á málefnum fyrirtækisins og þróun þess.
Höfðu hinir ákærðu stjórnarmenn því réttmæta ástæðu til að ætla að þær upplýsingar sem starfsmenn sparisjóðsins veittu þeim væru fullnægjandi og traustar,“ segir í dómnum.
Þá bendir dómurinn einnig á að þótt fyrir hafi legið að markaðsvirði Exista hefði lækkað umtalsvert mánuðina á undan hafi stjórnin engu að síður mátt ætla að fyrirliggjandi upplýsingar væru í meginatriðum áreiðanlegar.
Voru því sem fyrr segir allir ákærðu í málinu sýknaðir í héraðsdómi.