Nýr dómsformaður hefur tekið við markaðsmisnotkunarmáli Glitnis eftir að dómsformaður ákvað að víkja frá málinu í byrjun desember. Nýi dómsformaðurinn tekur þó aðeins við málinu tímabundið og mun það færast til þriðja dómarans, en honum hafði reyndar upphaflega verið úthlutað málinu en þurfti svo að segja sig frá því vegna námsleyfis.

Upphaflega fékk dómarinn Arngrímur Ísberg málið í sínar hendur og var með það í þingfestingu og fyrstu fyrirtökum. Síðar sagði hann sig frá því vegna námsleyfis og tók þá Sigríður Hjaltested við sem nýr dómsformaður.
Frétt mbl.is: Nýr dómari í Glitnismáli
Frétt mbl.is: Dómari víkur í Glitnismáli
Verjendur í málinu höfðu gert athugasemdir við Sigríður Hjaltested héraðsdómari væri dómsformaður þar sem eiginmaður hennar hafi verið starfsmaður bankans á þeim tíma sem meint brot ákærunnar áttu sér stað. Tók Sigríður undir með þeim þegar gögn í málinu lágu fyrir, en eiginmaður hennar kom meðal annars fram í einhverjum gögnum. Sagði hún sig þá frá málinu, en ekki var ljóst hver myndi taka við því.
Símon Sigvaldsson héraðsdómari tók tímabundið við málinu í dag við málflutning um úrskurðaratriði. Mun Arngrímur Ísberg aftur taka við málinu þegar hann kemur til baka úr námsleyfi í lok febrúar, en aðalmeðferð í málinu verður væntanlega ekki fyrir þann tíma.