Sigmundur Davíð Gunnlaugsson þingmaður Framsóknarflokksins segir að einhverjir eigi von á góðum bónusum þökk sé ríkisstjórn Íslands. Hann segir vogunarsjóði vera að græða umtalsverða fjármuni.

„Það gleymist stundum í umræðu um aflandskrónurnar að vogunarsjóðirnir keyptu þær í flestum tilfellum á verulegum afslætti af þeim sem urðu fyrir tjóninu við fall bankakerfisins,“ skrifar Sigmundur á Facebook-síðu sína.
„Ég spurðist fyrir um hvert meðalkaupverðið hefði verið hjá þeim. Eftir því sem næst verður komist fengu þeir líklega um 240 aflandskrónur fyrir evruna. Samkvæmt seðlabankanum nema aflandskrónur hátt í 200 milljörðum. Þar af snerist New York-díll stjórnvalda um 90 milljarða.“
„Á genginu 240 kostuðu 90 milljarðarnir sjóðina 375 milljónir evra. Nú kaupir ríkið þessar sömu krónur á 655 milljónir evra sem bætast við vextina sem sjóðirnir voru búnir að fá. Einhverjir eru að fara að fá góða bónusa þökk sé ríkisstjórn Íslands,“ skrifar Sigmundur.
Þá segir hann að ríkisstjórn sem hafi efni á að fjármagna bónusgreiðslur í New York, London og Reykjavík hljóti að geta endurnýjað lækningatæki, rétt hlut eldri borgara, fækkað einbreiðum brúm, klárað Dettifossveg, Berufjarðarbotn, Vestfjarðaveg og ljósleiðaravæðinguna.
Líkt og fram hefur komið hefur samhliða afnámi hafta á innlenda aðila verið samið við stærsta hluta eigenda aflandskróna. Samkomulagið snýst um að Seðlabankinn kaupir aflandskrónueignir fyrir erlendan gjaldeyri og er viðmiðunargengið í viðskiptunum 137,5 krónur fyrir evruna, sem er 20% yfir skráðu gengi evru síðastliðinn föstudag.
Tilboð stjórnvalda til þessara vogunarsjóða í síðasta gjaldeyrisútboði í júní hljóðaði upp á 190 krónur fyrir evruna. Tekur breytingin m.a. mið af sterkara gengi íslensku krónunnar.