Tónlistarhátíðinni Iceland Airwaves lauk í gærkvöldi en mikið fjör var á tónleikum víðs vegar um höfuðborgina um helgina. Mumford & Sons áttu lokaorðið í Valshöllinni í gærkvöldi.

Hátíðin hófst á miðvikudag en áðurnefndir tónleikar Mumford & Sons og tónleikar Fleet Foxes í Eldborgarsal Hörpu á laugardagskvöld voru hápunktar þessa árs.
Grímur Atlason, einn skipuleggjenda Iceland Airwaves, sagði í samtali við Morgunblaðið í dag að hátíðin hefði gengið vonum framar. „Við breyttum til í ár og minnkuðum hátíðina um 1.500 manns frá því í fyrra,“ sagði Grímur en hann telur að um 7.500 manns hafi sótt hátíðina í ár.