Stórhríð í Hvalfirði

Óveður í nóvember 2017 | 24. nóvember 2017

Stórhríð í Hvalfirði

Stórhríð er í sunnanverðum Hvalfirði og þæfingsfærð að því er fram kemur á vef Vegagerðarinar. Á Vesturlandi er víða hvasst, en víðast er þó verið að hreinsa vegi í kringum þéttbýli. Brattabrekka er þungfær en þæfingsfærð er á köflum á Snæfellsnesi. Holtavörðuheiði er enn lokuð.

Stórhríð í Hvalfirði

Óveður í nóvember 2017 | 24. nóvember 2017

Vegir eru víða lokaðir og hríðarveður er á Öxnadalsheiði og …
Vegir eru víða lokaðir og hríðarveður er á Öxnadalsheiði og við Eyjafjörð. mbl.is/RAX

Stórhríð er í sunnanverðum Hvalfirði og þæfingsfærð að því er fram kemur á vef Vegagerðarinar. Á Vesturlandi er víða hvasst, en víðast er þó verið að hreinsa vegi í kringum þéttbýli. Brattabrekka er þungfær en þæfingsfærð er á köflum á Snæfellsnesi. Holtavörðuheiði er enn lokuð.

Stórhríð er í sunnanverðum Hvalfirði og þæfingsfærð að því er fram kemur á vef Vegagerðarinar. Á Vesturlandi er víða hvasst, en víðast er þó verið að hreinsa vegi í kringum þéttbýli. Brattabrekka er þungfær en þæfingsfærð er á köflum á Snæfellsnesi. Holtavörðuheiði er enn lokuð.

Mosfellsheiði og Lyngdalsheiði eru lokaðar og á Vestfjörðum er vegur lokaður um Klettsháls og Súðavíkurhlíð.

Einnig er lokað um Ólafsfjarðarmúla, Víkurskarð og Hófaskarð og þá eru Mývatns- og Möðrudalsöræfi sömuleiðis lokuð, sem og Fagridalur og Fjarðarheiði.

Nokkur hálka er víða á Suðurlandi en sums staðar hvasst. Vegur er lokaður vestan Laugarvatns, allt vestur á Mosfellsheiði.

Þæfingsfærð er á Steingrímsfjarðarheiði en þungfært á Þröskuldum.

Verið er að hreinsa flesta vegi á Norðurlandi vestra, þ.á m. bæði Vatnsskarð og Þverárfjall. Siglufjarðarvegur er ófær og þar er stórhríð.

Hríðarveður er á Öxnadalsheiði og við Eyjafjörð, vegur víða þungfær en lokað er bæði í Ólafsfjarðarmúla og á Víkurskarði. Eins er lokað á Hófaskarði og síðan er lokað yfir Fjöllin frá Mývatni og austur um.

Vegur er opinn með austur- og suðausturströndinni en víða er hvasst, ekki síst í Hamarsfirði.

mbl.is