Hæstiréttur Lúxemborgar hafnaði í morgun dómi undirréttar í máli uppljóstrara sem láku þúsundum skjala í svo kölluðu „Lúxlekamáli“. Er áfrýjunardómstól gert að taka málið upp að nýju og skipa nýja dómara í málinu, samkvæmt niðurstöðu hæstaréttar.

Ljóstrað var upp um samninga sem gerðir voru við 340 stórfyrirtæki á borð við Pepsi, Ikea, Deutsche Bank og FedEx sem gerðu þeim kleift að komast undan himinháum skattgreiðslum þrátt fyrir að vera með lágmarksstarfsemi þar í landi. Að minnsta kosti eitt íslenskt fyrirtæki var á listanum, Kaupthing í Lúxemborg.
Svo virðist sem fyrirtækin hafi veitt hundruð milljarða Bandaríkjadala í gegnum Lúxemborg og þannig sparað sér milljarða dollara sem ella hefðu farið í skattgreiðslur. Á þessum tíma var Jean-Claude Juncker, forseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, forsætisráðherra Lúxemborgar.
Tveir fyrrverandi starfsmenn endurskoðunarfyrirtækisins PricewaterhouseCoopers í Lúxemborg voru árið 2016 sakfelldir fyrir að hafa lekið skattaupplýsingum til fjölmiðla. Annar þeirra, Antoine Deltour, var síðar dæmdur í sex mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir áfrýjunardómstól, auk þess sem honum var gert að greiða 1.500 evrur í sekt. Hæstiréttur hefur nú ógilt dóm áfrýjunardómstólsins en ekki dóminn yfir félaga Deltours, Raphael Halet, sem var dæmdur til að greiða eitt þúsund evrur í sekt fyrir áfrýjunardómstól. Þeir voru aftur á móti báðir dæmdir í fangelsi í héraðsdómi.
Lúxlekamálið kom upp árið 2014 og vakti gríðarlega athygli enda upplýst um skattaundanskot stórfyrirtækja. Í kjölfar Lúxlekans komu ný svipuð mál upp eins og Panamaskjölin og Paradísarskjölin.