Fimm fyrrverandi starfsmenn Glitnis voru fundnir sekir í markaðsmisnotkunarmáli bankans í héraðsdómi í dag. Lárusi Welding, fyrrverandi bankastjóri Glitnis, var ekki gerð refsing, en hann hafði þegar hlotið refsihámark vegna brota sem þessara. Þá var Jóhannes Baldursson, fyrrverandi framkvæmdastjóri markaðsviðskipta Glitnis, dæmdur í 12 mánaða fangelsi, en hann hafði áður hlotið 5 ára fangelsi í öðrum hrunmálum.

Þrír starfsmenn eigin viðskipta bankans, Jónas Guðmundsson, Valgarð Már Valgarðsson og Pétur Jónasson, voru dæmdir skilorðsbundið fangelsi. Jónas 12 mánuði, Valgarð 9 mánuði og Pétur 6 mánuði. Enginn hinna ákærðu var viðstaddur dómsuppkvaðningu.
Voru mennirnir ákærðir fyrir markaðsmisnotkun, auk þess sem Lárus var líka ákærður fyrir umboðssvik. Aðalmeðferð fór fram frá 17. janúar til 2. febrúar.
Saksóknari fór fram á 6-18 mánaða skilorðsbundna dóma yfir þeim Jónasi, Valgarði og Pétri í ljósi stöðu þeirra innan bankans og að þeim hafi ekki áður verið gerð refsing. Lýstu þeir sjálfum sér sem einskonar starfsmönnum á plani.
Lárus var ákærður fyrir umboðssvik og markaðsmisnotkun. Saksóknari fór hins vegar ekki fram á frekari refsingu yfir Lárusi en hann hefur þegar verið dæmdur í sex ára fangelsi í öðrum hrunmálum, sem er hámarksrefsing fyrir brot af þessu tagi.
Saksóknari fór fram á eins árs hegningarauka yfir Jóhannesi en við aðalmeðferð sagði hann að ótvírætt væri að brotin hefðu verið framin með vitund og vilja Jóhannesar og Lárusar.
Þungar dómar hafa fallið í markaðsmisnotkunarmálum Landsbankans og Kaupþings þar sem tekist hefur verið á um viðskiptavakt bankanna með eigin hlutabréf og hvort starfsmenn hafi haldið verði bréfanna uppi með því að kaupa þau á markaði og svo selja þau til félaga í eigu starfsmanna eða vildarviðskiptavina með lánveitingum frá bönkunum og þannig án áhættu fyrir kaupendurna.
Verjendur í þessu máli hafa hins vegar haldið því fram að málin séu ólík vegna þess að Glitnir hafi tilkynnt að bankinn væri með viðskiptavakt.