Einstaklega heppin með skiptinema

Einstakar fjölskyldur | 10. maí 2018

Einstaklega heppin með skiptinema

Það er mögulegt að við sem ekki búum í Mosfellsbænum séum stundum pínulítið afbrýðisöm út í fólkið sem þar býr; í þessu friðsæla sveitarfélagi í jaðri höfuðborgarsvæðisins þar sem maður er kominn út í sveit fyrr en varir nánast eftir að hafa lokað dyrunum á eftir sér. Því verður ekki neitað að þannig var blaðakonu svolítið innanbrjósts er hún þurfti á gps-leiðsögn að halda á akstri framhjá hestum og túnum að nýlegu og hlýlegu finnsku bjálkahúsi við rætur Reykjafells þar sem hjónin Íris Hrund Bjarnadóttir og Guðmundur Geir Kristófersson búa ásamt ítalska skiptinemanum Arturo Batistoni. Patti, stærsti labrador-hundur sem blaðakona hefur séð, beið pollrólegur fyrir innan dyrnar, ekkert gelt og læti þrátt fyrir að ókunnugan gest bæri að garði en þó vökul augu og virkt eftirlit með nýjum gesti. Hann fékk svolítið klapp og í ljós kom að þessi risahundur er sannur ljúflingur með stórt hjarta.

Einstaklega heppin með skiptinema

Einstakar fjölskyldur | 10. maí 2018

Hjónin Íris Hrund Bjarnadóttir og Guðmundur Geir Kristófersson búa í …
Hjónin Íris Hrund Bjarnadóttir og Guðmundur Geir Kristófersson búa í nýlegu og hlýlegu finnsku bjálkahúsi við rætur Reykjafells ásamt ítalska skiptinemanum Arturo Batistoni og hundinum Patta. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Það er mögulegt að við sem ekki búum í Mosfellsbænum séum stundum pínulítið afbrýðisöm út í fólkið sem þar býr; í þessu friðsæla sveitarfélagi í jaðri höfuðborgarsvæðisins þar sem maður er kominn út í sveit fyrr en varir nánast eftir að hafa lokað dyrunum á eftir sér. Því verður ekki neitað að þannig var blaðakonu svolítið innanbrjósts er hún þurfti á gps-leiðsögn að halda á akstri framhjá hestum og túnum að nýlegu og hlýlegu finnsku bjálkahúsi við rætur Reykjafells þar sem hjónin Íris Hrund Bjarnadóttir og Guðmundur Geir Kristófersson búa ásamt ítalska skiptinemanum Arturo Batistoni. Patti, stærsti labrador-hundur sem blaðakona hefur séð, beið pollrólegur fyrir innan dyrnar, ekkert gelt og læti þrátt fyrir að ókunnugan gest bæri að garði en þó vökul augu og virkt eftirlit með nýjum gesti. Hann fékk svolítið klapp og í ljós kom að þessi risahundur er sannur ljúflingur með stórt hjarta.

Það er mögulegt að við sem ekki búum í Mosfellsbænum séum stundum pínulítið afbrýðisöm út í fólkið sem þar býr; í þessu friðsæla sveitarfélagi í jaðri höfuðborgarsvæðisins þar sem maður er kominn út í sveit fyrr en varir nánast eftir að hafa lokað dyrunum á eftir sér. Því verður ekki neitað að þannig var blaðakonu svolítið innanbrjósts er hún þurfti á gps-leiðsögn að halda á akstri framhjá hestum og túnum að nýlegu og hlýlegu finnsku bjálkahúsi við rætur Reykjafells þar sem hjónin Íris Hrund Bjarnadóttir og Guðmundur Geir Kristófersson búa ásamt ítalska skiptinemanum Arturo Batistoni. Patti, stærsti labrador-hundur sem blaðakona hefur séð, beið pollrólegur fyrir innan dyrnar, ekkert gelt og læti þrátt fyrir að ókunnugan gest bæri að garði en þó vökul augu og virkt eftirlit með nýjum gesti. Hann fékk svolítið klapp og í ljós kom að þessi risahundur er sannur ljúflingur með stórt hjarta.

Fljótur að læra íslensku

Umhyggja Írisar og Guðmundar gagnvart Arturo er augljós við fyrstu kynni. Heimilisfaðirinn dregur stoltur upp síma og sýnir blaðakonu myndband af sjónvarpsviðtali sem tekið var við hann fyrir fáeinum mánuðum vegna þess hversu vel honum tókst að ná íslenskunni en það ku vera allur gangur á því hversu fljótt erlendir skiptinemar ná tökum á málinu.

„Við erum einfaldlega svo heppin með skiptinema. Hann er mjög klár en svo er hann líka svolítið eins og við, rólegur og heimakær þannig að hann fellur alveg inn í heimilislífið,“ segir Íris greinilega að springa úr stolti af stráknum.

Íris og Guðmundur eiga þrjár stúlkur, Gunnhildi Lillju Guðmundsdóttur, 25 ára, í sambúð með Guðbergi Geir Jónssyni, 27 ára, og eiga þau von á sínu fyrsta barni, litlum dreng í byrjun júní og eðlilega mikil eftirvænting í fjölskyldunni. Miðdóttirin heitir Ásthildur Jóna Guðmundsdóttir og er 23 ára og eru báðar eldri dæturnar fluttar að heiman og stunda nám í viðskiptafræði í HÍ. Yngsta dóttirin, heimasætan, heitir Regína og er 17 ára.

Eftir að hafa alið upp þrjár dætur búa hjónin núna einvörðungu með einn ítalskan prins á heimilinu. Breytingarnar á samsetningu fjölskyldunnar hófust með því að yngsta dóttirin varð áhugasöm um skiptinám erlendis. Hún hafði farið á kynningu um skiptinám og kynnti hugmyndina fyrir foreldrum sínum í kjölfarið sem tóku vel í hana og sögðu að ef þetta væri eitthvað sem hún virkilega vildi þá væru þau til í að styðja hana.

„Og það kom í ljós að þetta var eitthvað sem hún virkilega vildi því hún sá um alla pappíra sjálf og annan undirbúning. Mjög skipulögð, þannig að við bara reyndum að standa við bakið á henni eins og við gátum,“ segir Íris.

Regína fór til Frakklands fyrir um níu mánuðum og líður vel núna en hefur þurft að skipta um fjölskyldu eins og stundum getur gerst í skiptinámi. Mamma hennar segir að það hafi verið andleg veikindi í fyrri fjölskyldunni og það hafi tekið dóttur þeirra nokkurn tíma að átta sig á að heimilishaldið var smitað af þeim veikindum. Meðal annars af því að þetta var ekki eitthvað sem gerðist allt í einu en var þó allt umlykjandi. Hún á sem betur fer góða hollenska vinkonu í Chatellerault, þar sem hún býr, sem einnig er skiptinemi en hún benti henni á að fyrsta fjölskyldan hentaði henni ekki og að hún ætti að finna sér aðra. Sem hún gerði upp á eigin spýtur án þess að vekja áhyggjur hjá foreldrum sínum.

Miklar breytingar áttu sér stað í lífi fjölskyldunnar þegar faðir Írisar lést fremur skyndilega um það bil þegar þau voru að flytja í nýja bjálkahúsið fyrir um þremur og hálfum mánuði. Regína kom heim frá Frakklandi til að fylgja afa sínum síðasta spölinn og lét þá foreldra sína vita af breytingunum og að ný fjölskylda biði hennar þegar hún kæmi út aftur. Sem reyndust svo vera hjónin sem hýsa hollensku vinkonuna. Hún hafði kviðið því að skipta um fjölskyldu því pabbinn í fyrri fjölskyldunni er kennari í skólanum hennar en það hefur svo ekki reynst vera neitt vandamál. Allt fór vel og hún er mjög sátt í Chatellerault.

Hjónin fluttu í finnska bjálkahúsið í janúar á þessu ári.
Hjónin fluttu í finnska bjálkahúsið í janúar á þessu ári. Eggert Jóhannesson

Einfaldara pasta og frjálslegri samskipti

„Við ætluðum svo sem ekkert að taka skiptinema í staðinn. Vorum ekkert mótfallin því en vorum heldur ekkert að pæla í því. Þekktum lítið til skiptináms og svona. En svo komu póstar frá AFS þar sem óskað var eftir fjölskyldum fyrir erlenda skiptinema og við fórum að velta fyrir okkur að við gætum alveg eins tekið á móti skiptinema. Rétt eins og einhver fjölskylda úti í heimi var tilbúin að taka á móti dóttur okkar. Svo við nefndum að við værum tilbúin að skoða möguleikann á að hýsa skiptinema en þá voru mörg tilvik þar sem skiptinemarnir voru með dýraofnæmi og við auðvitað með hann Patta okkar. Hins vegar kom upp ófyrirséð atvik í þeirri fjölskyldu sem ætlaði að taka við Arturo og hann var fjölskyldulaus fyrstu þrjár vikurnar. Svo sem í góðum höndum hjá AFS en samt ekki í þeirri stöðu sem hann hafði ætlað sér á Íslandi svo það kom hálfgert neyðarkall frá samtökunum vegna hans. Við spurðum hvort hann væri með ofnæmi og svo reyndist ekki vera. Þá bara small þetta,“ segir Íris og Guðmundur tekur undir.

Arturo segir að lífið í Mosfellsbænum og heima í Flórens sé ekki svo ýkja ólíkt þó svo að umhverfi, veðurfar og fleira sé augljóslega mjög ólíkt. En svo eru það þessir litlu hlutir eins og að heima borði hann bara pasta í hádeginu en í Mosó er pastamáltíð kvöldmatur. Og hjónin benda á að hann hafi sko kennt þeim að borða pasta upp á nýtt. Við Íslendingar gerum oft alls kyns flóknar sósur sem tekur langan tíma að elda en Arturo hafi kennt þeim einfaldleika í matseld, einkum þegar pasta er eldað, og sá matur sé alls ekki síðri. Hann segir ennfremur að áherslurnar séu öðruvísi í skólanum en hann stundar nám í Verslunarskóla Íslands. Þar sé sérhæfingin töluvert meiri á námsbrautum en hann á að venjast frá Ítalíu en að sama skapi ágætt úrval valnámskeiða. Einnig eru samskiptin við kennarana mun opnari og frjálslegri hérlendis en á Ítalíu eru kennarar ávarpaðir með eftirnafni og þéraðir.

Arturo segir að það hafi komið sér svolítið á óvart hvað það er oft margt um manninn á heimili Írisar og Guðmundar. „Svolítið eins og á Suður-Ítalíu! Alltaf fólk að koma og fara og afar gestkvæmt.“ Hann segir að þetta sé öðruvísi en hann eigi að venjast heima í Flórens. Íris segir að þetta geti stafað að því að þau Guðmundur séu bæði utan af landi, en þau ólust upp á sitthvorum helmingi landsins í austri og vestri. Hún er af Austfjörðum en hann af Snæfellsnesinu en þau kynntust í Ólafsvík eftir að foreldrar Írisar voru fluttir til Reykjavíkur.

Sveitin í borginni

Íris segir að fólk detti oft inn í heimsókn hjá þeim, svolítið eins og í sveitinni. Það er ekkert endilega verið að hringja á undan og blaðakonu rekur minni til að svoleiðis hafi það einmitt verið í hennar uppvexti, þegar elsta kynslóð landsins hafi verið að ala upp sín börn. Að þá hafi oft verið meira um að fólk heimsótti hvað annað á kvöldin en þetta hafi breyst. Nú heimsæki fólk ekki hvað annað nema það sé þaulskipulagt.

„Já, ætli við höfum ekki tekið sveitina með okkur í borgina því þetta er svona enn þá úti á landi,“ segir Íris. „Mikill samgangur og oft mjög gestkvæmt.“

Íris, Guðmundur, dætur þeirra, tengdasonur og skiptinemi eru í nánum tengslum við fólkið sitt og náttúruna í Mosfellsbænum og ljóst að litli ófæddi drengurinn á gott líf í vændum.

mbl.is