Ekki á fleygiferð og þakklát fyrir það

Einstakar fjölskyldur | 18. maí 2018

Ekki á fleygiferð og þakklát fyrir það

Hjónin Sólveig María Svavarsdóttir og Jón Heiðar Hannessonar búa ásamt börnum, au-pair stúlku og hundi í fallegu húsi í Úlfarsárdal. Hann er sjómaður, hún er heimavinnandi og saman leggja þau afar mikla áherslu á stresslaust heimilislíf, útiveru og njóta hins einfalda i tilverunni með börnunum sínum. Hag þeirra setja þau alltaf í öndvegi.

Ekki á fleygiferð og þakklát fyrir það

Einstakar fjölskyldur | 18. maí 2018

Hjónin Sólveig María Svavarsdóttir og Jón Heiðar Hannessonar búa ásamt …
Hjónin Sólveig María Svavarsdóttir og Jón Heiðar Hannessonar búa ásamt börnum, au-pair stúlku og hundi í fallegu húsi í Úlfarsárdal. Hann er sjómaður, hún er heimavinnandi og saman leggja þau afar mikla áherslu á stresslaust heimilislíf, útiveru og njóta hins einfalda i tilverunni með börnunum sínum. Mbl.is/Valgarður

Hjónin Sólveig María Svavarsdóttir og Jón Heiðar Hannessonar búa ásamt börnum, au-pair stúlku og hundi í fallegu húsi í Úlfarsárdal. Hann er sjómaður, hún er heimavinnandi og saman leggja þau afar mikla áherslu á stresslaust heimilislíf, útiveru og njóta hins einfalda i tilverunni með börnunum sínum. Hag þeirra setja þau alltaf í öndvegi.

Hjónin Sólveig María Svavarsdóttir og Jón Heiðar Hannessonar búa ásamt börnum, au-pair stúlku og hundi í fallegu húsi í Úlfarsárdal. Hann er sjómaður, hún er heimavinnandi og saman leggja þau afar mikla áherslu á stresslaust heimilislíf, útiveru og njóta hins einfalda i tilverunni með börnunum sínum. Hag þeirra setja þau alltaf í öndvegi.

Það er mikil framkvæmdastemning í Úlfarsárdalnum þegar blaðakona ekur um hverfið í leit að réttu húsi. Vorsól skín í heiði – í dalnum sést einmitt vel upp í heiði – það er kalt í lofti og húsin eru ýmis skjannahvít í sólskininu eða steypugrá. Ómáluð ennþá. Það eru stillansar, stór húsagler í pakkningum, byggingarkranar, steypubílar, krakkar á hjólum á gangstéttunum og iðnaðarmenn í neongulum vinnugöllum að sýsla, klára hús. Fjölmörg hús eru þó löngu tilbúin. Eða eins og hægt er að vera löngu tilbúin í svona nýju hverfi. Til dæmis hús hjónanna Sólveigar Maríu Svavarsdóttur og Jóns Heiðars Hannessonar en þau fluttu inn árið 2011.

„ Við vorum heppin, keyptum fokhelt á réttum tíma,“ segir Sólveig og blaðakona tekur undir að þau eru heppin með húsnæði. Gullfallegt hús með dásamlegt útsýni í nýju hverfi sem þýðir að það eru margir leikfélagar í öllum nálægum húsum fyrir börn hjónanna, þau Steindór Sólon sem er 13 að verða 14, Ísold Svövu sem er átta að verða níu, Bjarma Sæ fjögurra ára og litla barnið Maísól Mirru sem er eins að verða tveggja. Hollenska au-pair stúlkan Pia Staigis býr einnig hjá fjölskyldunni og hefur gert sl. fjóra mánuði en hennar vist lýkur í byrjun júlí. Ekki mál gleyma Schnauzer-tíkinni Öldu sem tók glaðhlakkaleg á móti blaðakonu og vill augljóslega vera vinkona allra.

Ekkert stress

Í hverfinu þar sem Sólveig og Jón Heiðar búa ásamt börnum sínum er mörgu lokið en einnig margt sem á eftir að verða. Sama á við um lífið hjá þessari stóru fjölskyldu, ýmislegt að baki en margt spennandi framundan. Tveggja ára afmæli um næstu helgi auk þess sem unglingurinn verður fermdur. Alltaf líf og fjör – en samt aldrei stress.

Sem er kjarni málsins hjá þessari fallegu fjölskyldu og beinlínis leiðarljós; ekkert stress.

Sólveig er heimavinnandi húsmóðir og sjómannskona, sem þýðir augljóslega að Jón Heiðar er sjómaður, en hann er yfirvélstjóri á uppsjávarskipinu Venusi.

-Veldur það ekki oft ákveðnum erfiðleikum og álagi eiginkonu í landi að eiga mann úti á sjó?

„Jú, en það fylgja þessari stöðu líka margir kostir. Og þegar maður vegur kostina og gallana þá er þetta besta staðan fyrir okkur. Ég er menntaður grunnskólakennari en vel að vinna heima til að geta sinnt börnunum sem allra best.“

-Nú er það ekki algengt að íslenskar konur séu heimavinnandi, færðu stundum athugasemdir frá fólki?

„Já, það kemur alveg fyrir. Þjóðfélagið gerir ráð fyrir að báðir foreldrar vinni utan heimilis og einhvern veginn að fólk, ekki síst konur, geri alveg ótrúlega marga hluti í einu. Það er mér hjartans mál að rjúfa þennan staðal. Ég hef alveg lent í því hálfpartinn að afsaka mig en er að æfa mig að segja: „Já, er heimavinnandi“ og sleppa orðinu „bara“. Hinsvegar pæli ég ekki í því í dag hvað öðrum finnst, þó ég hafi gert það áður.“

Hjónin búa í gullfallegu húso með dásamlegu útsýni í nýju …
Hjónin búa í gullfallegu húso með dásamlegu útsýni í nýju hverfi sem þýðir að það eru margir leikfélagar í öllum nálægum húsum fyrir börn hjónanna, ValgardurGislason,Valgarður Gíslason

Sólveig og Jón Heiðar sáu að sjómannslífið hefur þá kosti helsta að þegar Jón Heiðar er heima, þá er hann á staðnum fyrir börnin og ekki með hugann við eitthvað annað, eða komandi heim kl. sjö að kveldi eins og þegar hann vann í landi. „Þannig er gæðatíminn sem hann fær með fjölskyldunni og við með honum bæði lengri og betri. En auðvitað er það stundum erfitt þegar hann er í burtu,“ segir Sólveig.

Oft erfitt að kveðja börnin og fara út á sjó

Jón Heiðar tekur undir að þetta fyrirkomulag hafi sína kosti en honum þyki enn stundum erfitt að fara frá heimilinu og börnunum. Til dæmis þegar þau eru leið og gráta þegar pabbi fer og svo er erfitt að vera í burtu sérstaklega ef einhver á afmæli, er veikur og þess háttar. Einnig var mjög erfitt að fara frá börnunum þegar þau voru rétt nýfædd, nokkurra vikna gömul. En þetta lærist eins og annað, að aftengja sig andlega frá heimilinu og sinna vinnunni á sjónum þó hugurinn leiti vissulega oft heim.

Jón Heiðar vinnur þrjár vikur og er heima í þrjár vikur og Sólveig segir að lífið sé svolítið lagskipt. Auðvitað sé það mjög mikil vinna að vera ein með börnin þegar hann er á sjónum, sem er ein helsta ástæðan fyrir því að þau fengu au-pair stúlkuna Píu inn á heimilið. Við lögðum upp með að hún myndi vinna frekar mikið þegar Jón Heiðar er á sjónum en hinsvegar fær hún gott frí þegar hann er heima og hefur getað nýtt tækifærið til að ferðast. Hún tekur undir það, segist hafa séð heilmikið af landinu og hafi fengið foreldra sína í heimsókn frá Hollandi til að ferðast.

Pia segir að sér finnist helsti munurinn á þeirri fjölskyldu sem hún dvelur hjá og fjölskyldum sumra vinkvenna sinna á Íslandi sem einnig eru au-pair að börnum Sólveigar og Jóns Heiðars sé einfaldlega meira sinnt. Þau eru meira úti, það er minni skjátími, meira leikið og hlustað á þau og þau fá meiri athygli. „Við leyfum börnunum minni skjátíma þó svo við bönnum hann ekki alveg og unglingurinn fær alveg að fara í símann sinn. En fyrsti kosturinn hjá foreldrum er bara svo oft að láta börnin fá tækin því það er svo auðvelt og fólk er svo upptekið og þreytt. Hjá okkur er þetta síðasti kosturinn því það er svo margt annað sem þau geta gert. Til dæmis um helgar þá fara litlu börnin út eftir morgunmat frekar en að það sé kveikt strax á sjónvarpinu,“ segir Sólveig.

„Við leggjum gríðarlega mikið uppúr því að vera til staðar fyrir börnin og höfum alltaf gert. Með því að fá aðstoð inn á heimilið fæ ég meiri tíma til að sinna börnunum og nota minni tíma í þvotta og önnur heimilisstörf. Og það er líka ástæðan fyrir því að ég vinn ekki úti, ég vil geta sinnt börnunum mínum og mér finnst oft mjög mikilvægt að gera minna og njóta þess sem við gerum saman.“

Gera allt með börnunum

Yngri börnin tvö eru í leikskóla en þó bara til kl. 14.00 mest 15.00 á daginn og þegar pabbi er heima er svigrúm til að leyfa þeim að sleppa við leikskólann. „Við viljum fá að gera hlutina á okkar hraða og leggjum einfaldlega mest upp úr því í lífinu að gera allt með börnunum. Þau eru alltaf hjá okkur, hvað sem við erum að gera. Hvort sem við erum að sýsla hérna heima, vinna í garðinum eða eitthvað annað, þá eru þau alltaf með okkur. Þannig að þetta er eitthvað sem við vorum alveg samstillt inn á frá upphafi, og þó við séum afar ólík erum við með mjög áþekkar hugmyndir um uppeldi og að börnin eru alltaf númer eitt, tvö og þrjú.“

Sólveig segir líka að þau leggi líka mikið upp úr því að rútína barnanna raskist ekki þegar pabbi þeirra kemur heim, það er ekkert farið út í búð og keypt nammi og allt leyst upp í kæruleysi. Hún segir að Jón Heiðar sé eiginlega strangari en hún með þetta atriði. „Það skiptir mig líka mjög miklu mál að fá andrými þegar Jón Heiðar kemur heim, geta verið ein og farið aðeins út af heimilinu og fyllt á tankinn. Ég fæ minna andrými eftir að börnin urðu fjögur, ég finn það alveg, og því er það enn mikilvægara að fá stundum minn prívat tíma, mitt andrými, þegar Jón Heiðar er í landi.“

Sólveig segir að þau séu afskaplega þakklát fyrir það líf sem þau lifa og að þau þurfi ekki að vera á fleygiferð og vera oft dauðþreytt í lok dags. „Við viljum taka einn dag í einu og njóta. Það er mjög mikilvægt.“

mbl.is