Nauðguðu 11 ára stúlku ítrekað

Kynbundið ofbeldi á Indlandi | 17. júlí 2018

Nauðguðu 11 ára stúlku ítrekað

17 karlmenn nauðguðu 11 ára stúlku ítrekað um nokkurra mánaða skeið en mennirnir unnu sem öryggisverðir, píparar og rafvirkjar í byggingu þar sem stúlkan bjó í borginni Chennai á Indlandi.

Árásarmennirnir voru leiddir fyrir dómara í dag.
Árásarmennirnir voru leiddir fyrir dómara í dag. AFP

17 karlmenn nauðguðu 11 ára stúlku ítrekað um nokkurra mánaða skeið en mennirnir unnu sem öryggisverðir, píparar og rafvirkjar í byggingu þar sem stúlkan bjó í borginni Chennai á Indlandi.

17 karlmenn nauðguðu 11 ára stúlku ítrekað um nokkurra mánaða skeið en mennirnir unnu sem öryggisverðir, píparar og rafvirkjar í byggingu þar sem stúlkan bjó í borginni Chennai á Indlandi.

Mennirnir voru handteknir og leiddir fyrir dómara í dag en lögmenn hafa neitað að verja mennina. Hróp voru gerð að mönnunum og hópur fólks réðst að þeim fyrir utan dómshúsið.

Mennirnir deyfðu stúlkuna og nauðguðu henni víða í byggingunni. Þeir tóku auk þess brotin upp á myndband. Stúlkan sagði eldri systur sinni frá brotunum og fjölskylda hennar hafði samband við lögreglu á sunnudag.

mbl.is