Lax er herramannsmatur og ekki spillir fyrir ef hann er villtur. Hér er einstaklega skemmtileg uppskrift að laxi sem á endanum var borinn fram í hrísgrjónapappír að austurlenskum hætti.
Lax er herramannsmatur og ekki spillir fyrir ef hann er villtur. Hér er einstaklega skemmtileg uppskrift að laxi sem á endanum var borinn fram í hrísgrjónapappír að austurlenskum hætti.
Það er Ragnar Freyr Ingvarsson – betur þekktur sem Læknirinn í eldhúsinu – sem á heiðurinn af þessari uppskrift sem er alveg hreint upp á tíu.
Grænmetið komið á hrísgrjónapappírinn.
mbl.is/Ragnar Freyr Ingvarsson
Dásamlega ljúffengur villtur íslenskur lax - oriental style - með þrenns konar sósum, grilluðu pok choy og fullt af fersku grænmeti
Það er ekki leiðinlegt þegar maður fær upphringingu á föstudegi þar sem stangveiðimaður þarf að koma nýveiddum laxi í hús. Slík skilaboð fékk ég á föstudaginn síðastliðinn frá Hjördísi Pétursdóttur en hún kom færandi hendi með þennan fallega spriklandi ferska lax.
Og auðvitað varð að elda hann hratt og örugglega. Og mér datt ekkert annað í hug en að gera það á eins ferskan hátt og mögulega.
Laxinn
- 1 ferskur villtur íslenskur lax (auðvitað má nota eldislax)
- 1 sítróna
- 1 rauður chili
- 2 vorlaukar
- 2-3 hvítlauksrif
- 7 cm engifer
- handfylli af ferskum íslenskum kryddjurtum
- 16 blöð af hrísgrjónapappír
Grænmetið
- kínakál
- papríkur í mörgum litum
- baunaspírur
- vorlaukur
- radísur
- gulrætur
- kastaníuhnetur
- blandað laufsalat
- ferskt kóríander
- ferskt basil
Meðlæti
- 3 pak choy
- 1 msk. soyasósa
- 1 msk. jómfrúarolía
- 1/2 rauður chilipipar
- salt og pipar
Fyrir sósurnar
Númer eitt:
- 4 hlutar majónes
- 1 hluti rauð sriracha-sósa
Númer tvö:
- 3 hlutar jómfrúarolía
- 1 hluti soyasósa
- 1 tsk. smátt saxaður hvítlaukur
- 1 tsk. smátt saxaður engifer
- 1/2 rauður chili-pipar – smátt saxaður
- 1/2 tsk. ristuð sesamfræ
- 1 tsk. hunang
- safi úr hálfri sítrónu
- salt og pipar
Númer þrjú:
- 4 hlutar majónes
- 1 hluti græn sriracha-sósa
- 1 msk. ferskur graslaukur, smátt skorinn
Aðferð:
- Byrjið á því að skera sítrónurnar, chili-piparinn, vorlaukinn, engiferinn, kryddjurtirnar og hvítlaukinn gróflega niður og komið fyrir inni í kviðarholi fisksins.
- Pakkið svo laxinum vandlega inn í álpappír, líklega er best að hafa hann í tvöföldu lagi af pappír, þannig sleppur enginn vökvi frá fiskinum og hann sýður í eigin safa.
- Útbúið sósurnar. Það er nauðaeinfalt. Bara að blanda hráefnunum saman í skálar og tylla á stórt fat.
- Sneiðið svo grænmetið smátt og raðið því í kringum sósuskálarnar.
- Setjið laxinn á blússheitt grillið í 35 mínútur eða svo. Það er góð hugmynd að snúa honum einu sinni á meðan eldun stendur þannig að hann eldist jafnt í gegn.
- Pak choy-ið er í raun bara kínakálsafbrigði. Það er skorið niður í helminga og öllu nema chili sáldrað yfir. Það er svo grillað á háum hita þangað til að blöðin visna og grænmetið tekur á sig lit. Þegar það er tilbúið er smátt skornum chili dreift jafnt yfir.
- Ég hafði keypt hrísgrjónapappír í Víetnam market á Suðurlandsveginum. Það þarf ekkert annað en að væta hann í heitu vatni og láta svo kólna á diski.
- Svo var bara að raða hráefninu á hrísgrjónapappírinn og vefja upp og taka svo stórann bita. Og njóta. Það er nú aðalatriðið.
Laxinn tilbúinn.
mbl.is/Ragnar Freyr Ingvarsson
Pok choy-ið grillað og fínt.
mbl.is/Ragnar Freyr Ingvarsson
Tilbúinn á grillið.
mbl.is/Ragnar Freyr Ingvarsson