Tveir blaðamenn Reuters, sem voru sakaðir um að hafa brotið lög er varða ríkisleyndarmál í Búrma (Mjanmar) með því að greina frá fjöldamorði á Rohingjum í landinu, hafa verið dæmdir í sjö ára fangelsi.

Wa Lone, 32 ára, og Kyaw Soe Oo, 28 ára, hafa verið í haldi í Insein-fangelsinu í borginni Yangon síðar þeir voru handteknir í desember.
Refsing fyrir brot þeirra varðar allt að 14 ára fangelsi.
„Þetta er sorgardagur fyrir Búrma … og frelsi fjölmiðla um heim allan,“ sagði Stephen J. Adler, ritstjóri Reuters, í yfirlýsingu.
Hann bætti við að dómurinn hefði verið felldur til að „þagga niður í umfjöllun þeirra og hræða fjölmiðla“.
Blaðamennirnir unnu að rannsókn á morðum á tíu Rohingjum í Rakhine-héraði í september í fyrra.
Þeir segja brögð hafa verið í tafli við handtökuna. Þeim var boðið í mat með lögreglu í Yangon, þar sem þeim voru afhent gögn og síðan handteknir þegar þeir yfirgáfu matarboðið. Var þeim gefið að sök að hafa í fórum sínum leyniskjöl um aðgerðir ríkisins á svæðinu.