Ingólfur Hauksson, forstjóri Glitnis HoldCo, segir að verið sé að skoða hvort máli þrotabúsins gegn fjölmiðlunum Stundinni og Reykjavík Media verði áfrýjað til Hæstaréttar.

Landsréttur hafnaði 5. október kröfu Glitnis HoldCo um staðfestingu lögbanns sem sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæðinu hafði lagt á umfjöllun Stundarinnar og Reykjavík Media sem byggð er á gögnum frá Glitni banka. Landsréttur staðfesti þar með dóm Héraðsdóms Reykjavíkur sem hafði komist að sömu niðurstöðu.
Ingólfur bætir við að ákvörðun liggi ekki fyrir.
Áfrýjunarfrestur í einkamálum til Hæstaréttar er fjórar vikur og rennur fresturinn út 2. nóvember.
Röksemdir Glitnis HoldCo fyrir því að lögbannið verði staðfest eru þær að fjölmiðlarnir hafi lýst því yfir að ekki væri búið að birta allar fréttir úr gögnunum sem þeir hefðu viljað þegar lögbannið var sett á. Þá fari birting gagnanna gegn ákvæðum laga um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga og frekari birting geti leitt til mögulegrar skaðabótaskyldu félagsins.
Stutt var til alþingiskosninga er sýslumaður staðfesti lögbannskröfuna, en umfjöllun Stundarinnar og Reykjavík Media hafði að miklu leyti snúist um viðskipti Bjarna Benediktssonar, formanns Sjálfstæðisflokksins, við Glitni í aðdraganda hruns íslenska fjármálakerfisins haustið 2008.