Daniel Ricciardo segir ökumann hafa afþakkað boð um að keppa fyrir Ferrari 2019. Segist hann þekkja viðkomandi en forðaðist að svara frekar spurningum um hann.

Snemma á keppnistíðinni var Ricciardo orðaður við Ferrari og gerast þar með liðsfélagi Sebastiand Vettel á ný.
Ricciardo staðfesti að hafa átt í viðræðum við Ferrari en samningar tókust ekki. Hermt er að Ferrari hafi ekki verið reiðubúið að borga honum það kaup sem hann setti upp, eða um 20 milljónir dollara á ári.
Í ágúst tilkynnti Ricciardo svo að hann hefði ráðið sig til Renault. Ferrari valdi þann kost að ráða Chares Leclerc ökumann Sauber sem keppnismann sinn í stað Kimi Räikkönen.
„Ég vonast til að eiga enn eftir nokkur ár í formúlu-1 og hver veit nema í framtíðinni bjóðist tækifæri að nýju,“ sagði Ricciardo sem telur að ekki hafi hurðum verið skellt á sig hjá Ferrari fyrir fullt og allt.