Aðalsamningamaður Bandaríkjanna vegna viðskiptadeilunnar við Kína segir að 1. mars sé síðustu forvöð til að komast að niðurstöðu um samning sem komið geti í veg fyrir frekara viðskiptastríð milli landanna.

„Hvað mig varðar þá lít ég á 1. mars sem lokadag. Þegar ég tala við forsetann þá talar hann ekki um að semja eftir 1. mars heldur talar hann um að ná samkomulagi ef mögulegt er á næstu 90 dögum,“ sagði Robert Lighthizer aðalviðskiptafulltrúi í samtali við fréttastöðina CBS í dag.
Þá sagði hann að handtaka Meng Wanzhou, fjármálastjóra Huawei og dóttur stofnanda raftækjaframleiðandans, í Kanada í byrjun desember muni ekki hafa áhrif á samningaviðræðurnar. „Það er opinbert mál og tengist ekki því sem ég er að gera,“ bætti hann við.
Kínversk stjórnvöld hafa krafist þess að hún verði látin laus og segja handtöku hennar vera brot á mannréttindum. Ekki hefur verið greint frá ástæðum handtökunnar og í yfirlýsingu frá Huawei segir að fyrirtækinu sé „ekki kunnugt um að Meng hafi brotið af sér“. Því hefur verið haldið fram að handtaka hennar tengist rannsókn bandarískra yfirvalda á meintum brotum Huawei á viðskiptabanni gegn Íran.
Handtakan hefur orðið til þess að fjárfestar hafa frekar haldið að sér höndum og staðan á fjármálamörkuðum ber þess merki. Hún þykir koma á gríðarlega slæmum tíma þar sem einungis sólarhringur var liðinn frá því að Donald Trump tilkynnti að hann og forseti Kína, Xi Jinping, hefðu fallist á að veita samninganefndum 90 daga til að leysa úr viðskiptadeilunni.