Hæstiréttur hafnaði í gær beiðni ríkissaksóknara um að dómstóllinn taki Aurum Holding-málið svo nefnda fyrir. Málið hefur í fjórgang verið tekið fyrir af dómstólum frá því það hófst fyrst fyrir sex árum síðan.

Landsréttur sýknaði í október alla þrjá sakborningana málinu, þá Lárus Welding, fyrrverandi forstjóra Glitnis, Magnús Arnar Arngrímsson, fyrrverandi framkvæmdastjóri fyrirtækjasviðs bankans, og Jón Ásgeir, sem var aðaleigandi bankans í gegnum eignarhaldsfélagið FL Group.
Héraðsdómur Reykjavíkur hafði áður dæmt Lárus í eins árs fangelsi, Magnús í tveggja ára fangelsi en sýknað Jón Ásgeir.
Saksóknari, sem áfrýjaði málinu sagði í málskotsbeiðni sinni til Hæstaréttar að það væri sitt mat að dómur Landsréttar væri efnislega rangur. Það hefði því „verulega almenna þýðingu“ að Hæstiréttur endurskoðaði beitingu Landsréttar á 249. grein hegningarlaga, þar sem hún væri ekki í samræmi við niðurstöður Hæstaréttar í svipuðum málum.
Hæstiréttur féllst ekki á þessi rök og neitaði beiðni saksóknara um að taka málið fyrir.
Þá var það mat Hæstaréttar að ekki væri heimild í lögum til að verða við kröfu tveggja sakborninganna um að verjendur þeirra fengju þóknun fyrir að gæta hagsmuna sinna vegna málskotsbeiðninnar.