Tveir fréttamenn Reuters, sem voru dæmdir í sjö ára fangelsi í undirrétti í Búrma fyrir að hafa brotið lög er varða ríkisleyndarmál með því að greina frá fjöldamorði á rohingjum í landinu, töpuðu málinu fyrir áfrýjunardómstól í dag. Var dómur undirréttar staðfestur.

Dómari við hæstarétt Yngon-héraðs, Aung Naing, segir að fyrri dómur hafi verið réttur, samkvæmt ákvæða laganna. Því sé áfrýjuninni vísað frá.
Wa Lone, 32 ára, og Kyaw Soe Oo, 28 ára, hafa verið í haldi í Insein-fangelsinu í rúmt ár.
Blaðamennirnir unnu að rannsókn á morðum á tíu rohingjum í Rakhine-héraði í september 2017.
Þeir segja brögð hafa verið í tafli við handtökuna. Þeim var boðið í mat með lögreglu í Yangon, þar sem þeim voru afhent gögn og síðan handteknir þegar þeir yfirgáfu matarboðið. Var þeim gefið að sök að hafa í fórum sínum leyniskjöl um aðgerðir ríkisins á svæðinu.