Ráðherra bregst við makríldómunum

Makríldómar Hæstaréttar | 14. mars 2019

Ráðherra bregst við makríldómunum

Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, hefur lagt fram nýtt frumvarp á samráðsgátt stjórnvalda þar sem brugðist er við dómum Hæstaréttar sem féllu í desember og vörðuðu úthlutun aflaheimilda í makríl á árunum 2011 til 2014.

Ráðherra bregst við makríldómunum

Makríldómar Hæstaréttar | 14. mars 2019

Gott makrílshal.
Gott makrílshal. mbl.is/Árni Sæberg

Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, hefur lagt fram nýtt frumvarp á samráðsgátt stjórnvalda þar sem brugðist er við dómum Hæstaréttar sem féllu í desember og vörðuðu úthlutun aflaheimilda í makríl á árunum 2011 til 2014.

Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, hefur lagt fram nýtt frumvarp á samráðsgátt stjórnvalda þar sem brugðist er við dómum Hæstaréttar sem féllu í desember og vörðuðu úthlutun aflaheimilda í makríl á árunum 2011 til 2014.

Með dómunum var viðurkennd skaðabótaábyrgð íslenska ríkisins vegna tjóns tveggja útgerðarfélaga, en talið var að skipum þeirra hefði verið úthlutað minni aflaheimildum en skylt var samkvæmt lögum.

Með frumvarpinu er lagt til að aflamarksstjórn verði tekin upp við veiðar á makríl en fram til þessa hefur stjórn veiða á stofninum lotið reglugerðum ráðherra og leyfum frá Fiskistofu, sem sett hafa verið til eins árs í senn, að því er fram kemur í umfjöllun um mál þetta í Morgunblaðinu í dag.

mbl.is