Keppendur aftarlega á rásmarki formúlunnar munu sjá rásmerkið á ný en á því varð misbrestur í fyrsta kappakstri ársins, í Melbourne.
Alþjóða akstursíþróttasambandið (FIA) hefur brugðist við kvörtunum ökuþór og látið hækka ljósabrúna yfir marklínunni svo öftustu menn sjái ljósmerkið, en þeir rjúka af stað þegar slokknar á ljósunum fimm ofan marklínunnar.
Meðal ökumanna sem kvörtuðu og sögðust ekki hafa séð ljósamerkið voru Robert Kubica á Williams og Pierre Gasly á Red Bull. Ástæðan var að nýir og stærri afturvængir en áður skyggðu á ljósin fimm. „Ég gat aðeins brugðist við þegar ég sá bílana í kringum mig ræsa,“ sagði Gasly í þýska íþróttablaðinu Sport1.
Valtteri Bottas undir ljósabrúnni sem þarf að hækka svo allir ökumenn sjái rásmerkið.
AFP