Tveir blaðamenn Reuters-fréttaveitunnar, sem hafa verið í haldi í Búrma (Mijanmar) í hátt á annað ár fyrir fréttaflutning sinn af rohingja-deilunni, hafa nú verið látnir lausir.

BBC segir blaðamennina, þá Wa Lone og Kyaw Soe Oo, hafa verið náðaða með forsetatilskipun, en þeir höfðu verið dæmdir til sjö ára fangelsisvistar fyrir brot á lögum er varða ríkisleyndarmál með því að greina frá fjöldamorði á rohingjum í landinu. Höfðu þeir dvalið rúma 500 daga í fangelsi þegar forseti Búrma náðaði þá.
Þeir Lone og Oo voru handteknir í desember 2017 og dæmdir fyrir að hafa undir höndum leyniskjöl um aðgerðir hersins í Rakhine-héraði, en blaðamennirnir unnu að rannsókn á morðum á tíu rohingjum í Rakhine-héraði í september 2017.
Sjálfir sögðu þeir brögð hafa verið í tafli við handtökuna. Þeim var boðið í mat með lögreglu í Yangon, þar sem þeim voru afhent gögn og síðan handteknir þegar þeir yfirgáfu matarboðið. Var þeim gefið að sök að hafa í fórum sínum leyniskjöl um aðgerðir ríkisins á svæðinu.
Handtaka blaðamannanna sætti gagnrýni alþjóðasamfélagsins og var m.a. sögð árás á fjölmiðlafrelsi.
Wa Lone sagði við BBC er hann var látinn laus að hann myndi aldrei hætta að vera blaðamaður.
„Ég er svo hamingjusamur og spenntur að hitta fjölskyldu mína og kollega. Ég get ekki beðið eftir að komast aftur á fréttastofuna,“ sagði hann.