Tónlistarkonan Ariana Grande virðist ekki vera par sátt við vaxmyndina af sér sem opinberuð var í vaxmyndasafninu Madame Tussaud í London nýlega.

Mynd af vaxmynd Grande var birt á Instagram í vikunni og Grande skildi eftir athugasemdina „Við þurfum að tala saman“ við myndina. Vaxmyndin þykir ekki mjög góð þrátt fyrir að tilheyra einu stærsta vaxmyndasafni í heimi. Það er mikill heiður að fá slíka vaxmynd af sér á safnið, en þar má finna vaxmyndir af helstu stjörnum heimsins fyrr og síðar.