Eins og að stunda veiðar á Jökulsárlóni

Rækjuveiðar | 2. júlí 2019

Eins og að stunda veiðar á Jökulsárlóni

Ef ég ætti að nota einhverja líkingu þá dettur mér í hug að þetta sé líkast því að stunda togveiðar á Jökulsárlóni, bara á milljón sinnum stærra hafsvæði.“

Eins og að stunda veiðar á Jökulsárlóni

Rækjuveiðar | 2. júlí 2019

Helga María AK kom til bæjarins Ilulissat á vesturströnd Gænlands …
Helga María AK kom til bæjarins Ilulissat á vesturströnd Gænlands fyrir helgina. Ljósmynd/HB Grandi

Ef ég ætti að nota einhverja líkingu þá dettur mér í hug að þetta sé líkast því að stunda togveiðar á Jökulsárlóni, bara á milljón sinnum stærra hafsvæði.“

Ef ég ætti að nota einhverja líkingu þá dettur mér í hug að þetta sé líkast því að stunda togveiðar á Jökulsárlóni, bara á milljón sinnum stærra hafsvæði.“

Svona lýsir Heimir Guðbjörnsson, skipstjóri á Helgu Maríu AK, leiðangri á vegum Náttúruauðlindastofu Grænlands í svokölluðum Diskóflóa, en stofan leigir skipið af HB Granda í sumar með það að markmiði að kanna rækju- og grálúðustofna við Vestur-Grænland.

Þetta er búið að vera spennandi verkefni en jafnframt krefjandi,“ er haft eftir Heimi á vef HB Granda.

Sá háttur er hafður á við rannsóknirnar að togað er með rækjutrollinu í 15 mínútur í senn og seltumagn og hitastig sjávar mælt. 

Það hefur valdið okkur nokkrum erfiðleikum hér norðurfrá að hafísjakar eru úti um allt. Þeir stærstu koma fram á ratsjá en minni molana verðum við að koma auga á. Það er af og til mikil þoka yfir svæðinu, sérstaklega hér í Diskóflóanum, og menn verða því stöðugt að vera á varðbergi. Hér fyrir innan er fjörður þar sem skriðjökull nær langt út í sjó. Það brotna stöðugt heilu fjöllin úr jöklinum og fjörðurinn er kjaftfullur af hafís sem svo rekur út á Diskóflóann.

mbl.is