Kínverski tæknirisinn Huawei kynnti í dag sitt eigið stýrikerfi fyrir snjallsíma. Kerfið var hannað í ljósi áforma bandarískra yfirvalda að banna bandarískum fyrirtækjum að eiga í viðskiptum við Huawei, en fyrirtækið hefur notað Android-stýrikerfið frá Google.

Huawei, sem vermir annað sæti á lista yfir stærstu farsímaframleiðenda samkvæmt nýrri úttekt, seldi 58,7 milljónir snjallsíma á öðrum ársfjórðungi 2019. Er það sagt til marks um að félagið hafi staðið af sér hneykslismál ýmis sem skotið hafa upp kollinum að undanförnu, þar sem Huawei hefur verið sagt leggja kínverskum njósnurum lið.
Stýrikerfið nefnist HarmonyOS, eða HoMeng á kínversku. Richard Yu, yfirmaður neysluvara hjá Huawei, frumsýndi stýrikerfið á blaðamannafundi í Donggugan í dag. Áætlað er að fyrstu símarnir með nýja stýrikerfinu komi á markað síðar á árinu. Kerfið er gjörólíkt stýrikerfum Apple og Google, samkvæmt Yu. Stefna fyrirtækisins er að innan þriggja ára verði stýrikerfið aðengilegt fleiri vörutegundum Huawei en símum.