Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, tók á móti Mike Pence, varaforseta Bandaríkjanna, í Höfða rétt eftir klukkan 14. Pence þakkaði fyrir hlýjar móttökur en þetta er í fyrsta sinn hann og eiginkona hans, Karen Pence, koma til landsins.

Guðni ávarpaði varaforsetann að viðstöddum fjölmiðlum. Guðni sagðist vona að Pence-hjónin myndu njóta dvalarinnar hér á landi, þótt stutt yrði, og að varaforsetinn fengi tilfinningu fyrir þeim gildum sem íslenska þjóðin héldi í heiðri, til að mynda frelsi, fjölbreytileika og virðingu fyrir náunganum.
Að því loknu tók Pence við og sagði hann Bandaríkin stolt af því að hafa verið meðal fyrstu ríkja sem viðurkenndu sjálfstæði Íslendinga árið 1944.
Hann vakti einnig athygli á því að Ísland væri eitt af stofnríkjum NATO og að samband ríkjanna væri sterkt. Pence kvaðst hlakka til fundahalda í dag og lagði áherslu á sterkt samband ríkjanna og sagði bönd þeirra órjúfanleg.
Hernaðarmál voru óneitanlega fyrirferðarmikil í ávarpi Pence og þakkaði hann til að mynda fyrir samstarfið á sviði öryggismála og hlutverk Landhelgisgæslunnar. Vísaði hann einnig til þess, að umsvif Rússa og Kínverja væru vaxandi á norðurslóðum og sagði að samstarf Íslands og Bandaríkjanna um að gæta hagsmuna sinna á þessu svæði væri afar þýðingarmikið.
Að lokum stilltu þeir sér upp fyrir myndatöku, í sömu sætum og Ronald Reagan og Mikhaíl Gorbatsjev gerðu á leiðtogafundinum í Höfða 1986. „Á ég að vera Gorbatsjev?“ spurði Guðni og uppskar mikinn hlátur frá Pence og viðstöddum.