Ursula von der Leyen, sem tekur von bráðar við embætti forseta framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, hefur í samráði við aðildarríki ESB útnefnt 27 framkvæmdastjóra sem taka sæti í framkvæmdastjórninni, einni helstu stofnun ESB.
Ursula von der Leyen, sem tekur von bráðar við embætti forseta framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, hefur í samráði við aðildarríki ESB útnefnt 27 framkvæmdastjóra sem taka sæti í framkvæmdastjórninni, einni helstu stofnun ESB.
Ursula von der Leyen, sem tekur von bráðar við embætti forseta framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, hefur í samráði við aðildarríki ESB útnefnt 27 framkvæmdastjóra sem taka sæti í framkvæmdastjórninni, einni helstu stofnun ESB.
13 konur og 14 karlar eru á listanum og bíða þeirra ærin verkefni, svo sem að takast á við útgöngu Breta úr sambandinu og baráttuna gegn loftslagsvá. Bretar eiga ekki sinn fulltrúa í framkvæmdastjórninni, en fyrirhuguð útganga þeirra úr sambandinu er 31. október.
Ef Evrópuþingið samþykkir nýskipaða framkvæmdastjórn verður hún með jafnasta kynjahlutfall í sögu sambandsins. Der Leyen hefur gegnt embætti varnarmálaráðherra Þýskalands frá árinu 2013 en lætur nú af störfum til að taka við framkvæmdarvaldinu í Evrópusambandinu úr höndum Lúxemborgarans Jean-Claudes Junckers, en kjörtímabil hans rennur út 1. október. Der Leyen tekur formlega við 1. nóvember.
Tilnefning der Leyen kom á óvart en hún var samt sem áður áberandi í umræðunni og hét hún því að konur og karlar myndu skipa æðstu embætti til jafns í valdatíð hennar en Evrópusambandinu hefur gjarnan verið legið á hálsi fyrir það hve fáar konur halda þar um valdataumana. Til marks um það má nefna að der Leyen verður fyrsta konan til að gegna öðru tveggja valdamestu embætta sambandsins, en þau eru forseti framkvæmdastjórnar og forseti leiðtogaráðs.
Der Leyen ber ábyrgð á því að úthluta embættum til framkvæmdastjóranna eftir málefnasviðum og getur fært þá til eða gert þá kröfu að þeir segi af sér. Forsetinn ákveður stefnu framkvæmdastjórnarinnar og hefur úrslitaatkvæði falli atkvæði jöfn þegar lagafrumvörp eru samþykkt á vikulegum fundum framkvæmdastjórnarinnar. Framkvæmdastjórarnir eru skipaðir til fimm ára.
BBC hefur tekið saman lykilgerendur í nýju framkvæmdastjórninni, en þar má meðal annars finna Phil Hogan fyrrverandi ráðherra í írsku ríkisstjórninni og gríska þingmanninn Margaritis Schinas sem hefur átt sæti í framkvæmdastjórninni frá 2014, en de Leyen treystir á þá í Brexit-málum.
Þá má búast við að Frans Timmermans, leiðtogi jafnaðarmanna á Evrópuþinginu, sem margir bjuggust við að yrði næsti forseti framkvæmdastjórnarinnar, verði áberandi í loftslagsmálum.
Margrethe Vestager, sem hefur farið með samkeppnismál í framkvæmdastjórn Evrópusambandsins, er tilnefnd sem varaforseti framkvæmdastjórnarinnar, og mun hún að auki hafa umsjón með fagráðuneyti sem fjallar um stafræn mál.
Aðrir framkvæmdastjórar eru:
Johannes Hahn, Austurríki
Didier Reynders, Belgíu
Mariya Gabriel, Búlgaríu
Dubravka Suica, Króatíu
Stella Kyriakides, Kýpur
Vera Jourova, Tékklandi
Kadri Simson, Eistlandi
Jutta Urpilainen, Finnlandi
Sylvie Goulard, Frakklandi
Laszlo Trocsanyi, Ungverjalandi
Paolo Gentiloni, Ítalíu
Valdis Dombrovskis, Lettlandi
Virginijus Sinkevicius, Litháen
Nicolas Schmit, Lúxemborg
Helena Dalli, Möltu
Janusz Wojciechowski, Póllandi
Elisa Ferreira, Portúgal
Rovana Plumb, Rúmeníu
Maros Sefcovic, Slóvakíu
Janez Lenarcic, Slóveníu
Josep Borrell, Spáni
Ylva Johansson, Svíþjóð