ESB-ríkin fordæma innrás Tyrkja

Sýrland | 14. október 2019

ESB-ríkin fordæma innrás Tyrkja

Ríki Evrópusambandsins sameinuðust í dag í að fordæma innrás Tyrkja í Sýrland.

ESB-ríkin fordæma innrás Tyrkja

Sýrland | 14. október 2019

Tugþúsundir almennra borgara eru á flótta undan árásum í Norður-Sýrlandi.
Tugþúsundir almennra borgara eru á flótta undan árásum í Norður-Sýrlandi. AFP

Ríki Evrópusambandsins sameinuðust í dag í að fordæma innrás Tyrkja í Sýrland.

Ríki Evrópusambandsins sameinuðust í dag í að fordæma innrás Tyrkja í Sýrland.

Í sameiginlegri yfirlýsingu utanríkisráðherra ESB-ríkjanna kemur fram að þeir fordæmi hernaðaraðgerðir Tyrkja sem draga verulega úr stöðugleika og öryggi á stóru svæði. 

Á sama tíma er sýrlenski stjórnarherinn að færa sig norður í land en ríkisstjórn Sýrlands samþykkti í gær að veita hersveitum Kúrda hernaðaraðstoð í baráttunni við Tyrki. Sýrlenski herinn er kominn inn í bæinn Ain Issa sem er 30 km suður af tyrknesku landamærunum.

mbl.is