Spænskur dómari hefur gefið út nýja alþjóðlega handtökuskipun á hendur fyrrverandi forseta Katalóníu-héraðs, Carles Puigdemont, sem flúði til Belgíu til að komast hjá saksókn vegna misheppnaðrar sjálfstæðistilraunar héraðsins.

Handtökuskipunin, þar sem þess er krafist að Puigdemont sé hnepptur í varðhald, er gefin út á grundvelli ákæru um að hafa æst til uppreisnar og misnotað opinbert fé vegna þjóðaratkvæðagreiðslu um sjálfstæði Katalóníu í október 2017.
Hæstiréttur Spánar ógilti í júlí 2018 fyrri alþjóðlegu handtökuskipunina á hendur Carles Puigdemont.
Níu leiðtogar aðskilnaðarsinna í Katalóníu voru í dag dæmdir í langt fangelsi í hæstarétti Spánar. Oriel Junqueras, formaður ERC, fékk þyngsta dóminn eða 13 ár. Þrír aðrir fyrrverandi ráðherrar héraðsstjórnar Katalóníu fengu 12 ára dóm en aðrir vægari refsingu.