Einhugur virðist ekki ríkja á meðal ríkja Evrópusambandsins um hvort leyfa eigi aðkomu kínverska fyrirtækisins Huawei að uppbyggingu 5G-kerfis.

Svíar og Þjóðverjar tóku í dag þveröfugar ákvarðanir í málinu. Þannig hafa Þjóðverjar ákveðið að útiloka ekki aðkomu Huawei að uppbyggingunni á meðan Svíar hyggjast breyta lögum sínum þannig að hægt sé að útiloka aðkomu kínverskra fyrirtækja að ferlinu.
Bandaríkin hafa varað við tengslum Huawei við kínversk stjórnvöld og hafa sett fyrirtækið á svartan lista vegna ógnar við þjóðaröryggi. Þá hefur varaforseti Bandaríkjanna hvatt Guðlaug Þór Þórðarson utanríkisráðherra til að hafna kínverska fjarskiptarisanum.
Íslensku fjarskiptafyrirtækin Vodafone og Nova nota bæði að hluta til búnað frá Huawei. Unnið er að innleiðingu 5G-kerfisins á Íslandi og segir Margrét Tryggvadóttir, forstjóri Nova, að stefnt sé að því að taka nýja kerfið í notkun 2020. Nova taki öryggismálin mjög alvarlega.