Framkvæmdum flýtt um allt land

Samgönguáætlun 2020 til 2034 | 17. október 2019

Framkvæmdum um allt land verði flýtt

Flýta þarf samgönguverkefnum í öllum landshlutum frá því sem áður hafði verið ákveðið. Þetta kemur fram í endurskoðaðri samgönguáætlun sem Sig­urður Ingi Jó­hanns­son,sam­göngu- og sveit­ar­stjórn­ar­ráðherra, kynnti á fundi ráðuneyt­is­ins í morg­un.

Framkvæmdum um allt land verði flýtt

Samgönguáætlun 2020 til 2034 | 17. október 2019

Sigurður Ingi á fundinum í morgun.
Sigurður Ingi á fundinum í morgun. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Flýta þarf sam­göngu­verk­efn­um í öll­um lands­hlut­um frá því sem áður hafði verið ákveðið. Þetta kem­ur fram í end­ur­skoðaðri sam­göngu­áætlun sem Sig­urður Ingi Jó­hanns­son,sam­göngu- og sveit­ar­stjórn­ar­ráðherra, kynnti á fundi ráðuneyt­is­ins í morg­un.

Flýta þarf sam­göngu­verk­efn­um í öll­um lands­hlut­um frá því sem áður hafði verið ákveðið. Þetta kem­ur fram í end­ur­skoðaðri sam­göngu­áætlun sem Sig­urður Ingi Jó­hanns­son,sam­göngu- og sveit­ar­stjórn­ar­ráðherra, kynnti á fundi ráðuneyt­is­ins í morg­un.

Sú sam­göngu­áætl­un sem nú er í gildi er fyr­ir árin 2019 - 2033,  en á fund­in­um kynnti sam­göngu- og sveit­ar­stjórn­ar­ráðherra end­ur­skoðaða áætl­un frá og með næsta ári til árs­ins 2034.

Fjög­ur fram­kvæmda­svæði

Á fund­in­um kynnti hann m.a. þau sam­göngu­verk­efni sem þarf að flýta og skipti þeim eft­ir fjór­um svæðum. Á Suður­svæði eru helstu verk­efni aðskild­ar akst­urs­stefn­ur frá Skeiðavega­mót­um að Hellu, brú á Ölfusá, veg­ur á leiðinni Varmá - Kamb­ar og aðskild­ar akst­urs­stefn­ur á leiðinni Fitj­ar - Rósa­sel­s­torg, sem ligg­ur að Leifs­stöð.

Kjalarnesvegur. Framkvæmdir við hann eru meðal þeirra sem á að …
Kjal­ar­nes­veg­ur. Fram­kvæmd­ir við hann eru meðal þeirra sem á að flýta sam­kvæmt end­ur­skoðaðri sam­göngu­áætlun. mbl.is/​Sig­urður Bogi Sæv­ars­son

Á Vest­ur­svæði eru þessi verk­efni brýn­ust: aðskild­ar akst­urs­stefn­ur á Kjal­ar­nes­vegi og á leiðinni Akra­fjalls­veg­ur að Borg­ar­nesi, en ráðherra sagði á fund­in­um að brýnt væri að aðskilja akst­urs­stefnu á veg­um þar sem um­ferð væri 5.000 eða fleiri bíl­ar á sól­ar­hring. Þá eru Dynj­and­is­heiði og Bíldu­dals­veg­ur einnig á þess­um lista.

Á Norður­svæði þarf að flýta þess­um verk­efn­um: Brekkna­heiði og Vatns­nes­veg­ur.

Á Aust­ur­svæði er um að ræða þess­ar fram­kvæmd­ir: Reyðarfjörður að Breiðdals­vík, veg­ur­inn um Lón, veg­ur­inn við Horna­fjarðarfljót, Ax­ar­veg­ur, Miðfjarðargöng  og Fjarðaheiðargöng.

mbl.is