Jolie segir börnin hafa gengið í gegnum mikið

Jolie/Pitt | 6. nóvember 2019

Jolie segir börnin hafa gengið í gegnum mikið

Leikkonan Angelina Jolie segir að líkami sinn hafi gengið í gegnum mikið síðustu fjögur ár, sárin eru sýnileg og ósýnileg. Hollywood-stjarnan finnur blóðið aftur byrjað að streyma um æðar sínar og í viðtali við Harper's Bazaar segir hún að börnin sín hafi hjálpað sér.  

Jolie segir börnin hafa gengið í gegnum mikið

Jolie/Pitt | 6. nóvember 2019

Angelina Jolie með fjórum af sex börnum sínum á frumsýningu …
Angelina Jolie með fjórum af sex börnum sínum á frumsýningu í október. AFP

Leikkonan Angelina Jolie segir að líkami sinn hafi gengið í gegnum mikið síðustu fjögur ár, sárin eru sýnileg og ósýnileg. Hollywood-stjarnan finnur blóðið aftur byrjað að streyma um æðar sínar og í viðtali við Harper's Bazaar segir hún að börnin sín hafi hjálpað sér.  

Leikkonan Angelina Jolie segir að líkami sinn hafi gengið í gegnum mikið síðustu fjögur ár, sárin eru sýnileg og ósýnileg. Hollywood-stjarnan finnur blóðið aftur byrjað að streyma um æðar sínar og í viðtali við Harper's Bazaar segir hún að börnin sín hafi hjálpað sér.  

Jolie segir að börnin sín hafi hjálpað sér að finna sig á nýjan leik. 

„Þau hafa gengið í gegnum mikið. Ég læri af styrk þeirra. Við sem foreldrar hvetjum börnin okkar til að fagna því sem þau eru og allt sem býr í hjörtum þeirra er rétt. Þau líta aftur til okkar og vilja það sama fyrir okkur.“

Jolie á sex börn með leikaranum Brad Pitt en þau tilkynntu um skilnað í september árið 2016 og upphófst þá langt og strangt skilnaðarferli. Þrjú börn eru ættleidd en Jolie gekk sjálf með þrjú börn. 

Sex barna móðirin segir að hún leggi áherslu á í móðurhlutverkinu að börnin sín geti sagt: „Hér er ég og þetta er það sem ég trúi á.“ Segir hún að foreldrar geti ekki komið í veg fyrir að börn þeirra upplifi sársauka, sorg, líkamlegan sársauka. Það sem foreldrar geta þó gert að hennar mati er að auðvelda börnum sínum þessi tímabil. 

Angelina Jolie með dætrum sínum Shiloh Nouvel Jolie-Pitt og Zahöru …
Angelina Jolie með dætrum sínum Shiloh Nouvel Jolie-Pitt og Zahöru Marley Jolie-Pitt. AFP
mbl.is