Albanska konan sem vísað var frá Íslandi í gærmorgun er komin með mikla samdrætti og er í hættu á að fara af stað í fæðingu. Þetta kemur fram á Facebook-síðunni Réttur barna á flótta. Konan, eiginmaður hennar og tveggja ára barn komu til Albaníu í nótt eftir 19 klukkustunda ferðalag.

Konan ber barn undir belti og er komin 36 vikur á leið.
„Vegna langs og þreytandi ferðalags er hún núna í skoðun með mikla samdrætti og á í hættu á að fara af stað,“ segir meðal annars í Facebook-færslunni.
Konan verði flutt á annan spítala þar sem verið er að undirbúa fæðingu fyrirbura.
„Þar sem hennar fyrri fæðing var með keisara fannst læknunum mikilvægt að færa hana yfir á aðra stofnun. Ekki er víst að hún fari af stað í fæðingu en þar sem samdrættir eru svo sterkir er viðbúnaðurinn mikill. Það eina sem við getum gert er að bíða og vona það besta,“ segir í færslunni.