Söngkonan Jennifer Lopez varð fimmtug á árinu og hefur sjaldan verið í betra formi. Hún er dugleg að mæta í ræktina og sést það einna best á flottum rassi og vöðvastæltum leggjum. Söngkonan birti myndband á Instagram sem útskýrir að hluta til af hverju hún er í svona ótrúlega góðu formi.

Á myndbandinu hér fyrir neðan má sjá Lopez gera fótapressu í ræktinni. Má sjá þjálfara Lopez þyngja upp í 120 kíló og vara hana við þyngdinni. Söngkonan virtist hins vegar fara létt með að gera nokkrar endurtekningar af fótapressunni.
Margir kannast við þetta stóra tæki í ræktinni. Æfingin sem gerð er í tækinu reynir vel á rass- og lærvöðva. Á vef Shape er mælt með því að fólk geri þessa æfingu einna fyrst þegar kemur að því að styrkja neðri hluta líkamans á æfingum. Æfingin reynir á svipað svæði og hin klassíska hnébeygja en minna álag er á mjóbak og hné.