Magai Matiop Ngong var 15 ára gagnfræðaskólanemi í Suður-Súdan þegar hann var dæmdur til dauða fyrir að hafa skotið nágranna sinn til bana. Hann hefur setið á dauðadeild í tvö ár og eina fjölskyldan sem hann á er móðir hans sem er flóttamaður í Úganda.
Magai Matiop Ngong var 15 ára gagnfræðaskólanemi í Suður-Súdan þegar hann var dæmdur til dauða fyrir að hafa skotið nágranna sinn til bana. Hann hefur setið á dauðadeild í tvö ár og eina fjölskyldan sem hann á er móðir hans sem er flóttamaður í Úganda.
Magai Matiop Ngong var 15 ára gagnfræðaskólanemi í Suður-Súdan þegar hann var dæmdur til dauða fyrir að hafa skotið nágranna sinn til bana. Hann hefur setið á dauðadeild í tvö ár og eina fjölskyldan sem hann á er móðir hans sem er flóttamaður í Úganda.
Mál hans er hluti af alþjóðlegri herferð Amnesty International þar sem þrýst er á stjórnvöld víða um heim. Herferðin Þitt nafn bjargar lífi var formlega sett í Hörpu á fimmtudag.
„Á meðan réttarhöldin stóðu yfir sagði hann við dómarann að hann væri aðeins fimmtán ára og að morðið sem hann var ákærður fyrir hefði verið slys. Þrátt fyrir það dæmdi dómarinn hann til hengingar.
„Tilfinningin var alls ekki góð,“ segir Magai. Það er ekki ánægjulegt að fá að vita að maður sé að fara að deyja.“
Magai var ekki með lögfræðing sér til aðstoðar þegar hann var handtekinn eða við fyrstu réttarhöldin. Dómari sagði að hann gæti áfrýjað málinu og farið fram á ógildingu dauðarefsingarinnar. Hann fékk fyrst lögfræðing þegar hann var fluttur í annað fangelsi.
Á síðasta ári voru sjö hengdir í Suður-Súdan, einn af þeim var á barnsaldri eins og Magai.
Tveimur árum eftir að dómurinn var kveðinn upp er Magai á dauðadeild í Juba Central-fangelsinu þar sem hann bíður þess að áfrýjunin verði tekin fyrir. Hann hefur þó ekki misst vonina um að losna og halda áfram skólagöngu sinni,“ segir um Magai á vef Íslandsdeildar Amnesty International.
Samkvæmt upplýsingum frá Amnesty hefur Magai gaman af því að hlaupa og syngja. Þegar hann var handtekinn var hann í gagnfræðaskóla og dreymdi um að verða forseti Suður-Súdan svo hann gæti hjálpað samlöndum sínum. Nú eyðir hann mestum tíma sínum í kirkjunni í fangelsinu. Hann syngur gospel-lög til að slaka á og þegar ástandið er erfitt.
Þetta hófst allt 5. maí 2007 þegar frændi og nágranni Magai lentu í rifrildi. Daginn eftir kom nágranninn heim til Magai og þeim lenti saman vegna rifrildis nágrannans við frændann daginn áður. Nágranninn dró upp byssu og Magai nær einnig í byssu sem var til á heimilinu. Frændi Magai reynir að stöðva þá og biður Magai að hætta slagsmálunum sem komin voru upp. Magai skaut úr byssunni í jörðina en byssukúlan endurkastast og lendir í frænda Magai sem lést af völdum áverkanna á sjúkrahúsi.
Í lok maí 2017 er Magai færður úr herstöðinni í Nimule-sýslufangelsið. Hann er þar ákærður fyrir að hafa myrt frænda sinn. Þann 14. nóvember 2017 er hann dæmdur til dauða án þess að vera með lögmann. Þann 3. desember 2017 er hann fluttur í Torit ríkisfangelsið. Þann 27. desember hefur hann samband við Sameinuðu þjóðirnar sem útvega honum lögfræðing. Dauðadómnum var áfrýjað þann sama dag.
Þann 9. september 2018 var Magai fluttur frá Torit-fangelsinu í Juba-fangelsið þar sem hann bíður þess að áfrýjunin verði tekin fyrir. Á jóladag það sama ár hélt hann upp á 17 ára afmælið á dauðadeild.
Samkvæmt stjórnarskrá Suður-Súdan er bannað að dæma fólk til dauða fyrir glæp sem það fremur fyrir 18 ára aldur.
Á hverju ári í kringum alþjóðlega mannréttindadaginn 10. desember safnast milljónir bréfa, korta, SMS-ákalla og undirskrifta í gegnum alþjóðlegu mannréttindasamtökin Amnesty International þar sem skorað er á stjórnvöld að gera umbætur í mannréttindamálum.
„Þessi einstaki samstöðumáttur skilar raunverulegum breytingum í lífi þeirra sem minnst mega sín. Á hverju ári eru samviskufangar leystir úr haldi, fangar hljóta mannúðlegri meðferð, þolendur pyndinga sjá réttlætinu fullnægt, fangar á dauðadeild eru náðaðir eða ómannúðlegri löggjöf breytt,“ segir í tilkynningu frá Amnesty á Íslandi.