Segja má að forsetafrú Bandaríkjanna, Melania Trump, sé afhjúpuð í bókinni Free, Melania. Bókina skrifar fjölmiðlakonan Kate Bennett. Bennett starfar í Hvíta húsinu fyrir CNN og hefur hún sínar skoðanir og kenningar um hina leyndardómsfullu Melaniu Trump. Á vef New York Times er búið að taka saman nokkrar kenningar úr bókinni.

Í bókinni er meðal annars fjallað um samband Trump-hjónanna sem virðist oft ansi stirt. Segir Bennett að forsetahjónin Donald og Melania Trump sofi hvort í sínu herberginu hvort á sinni hæðinni í Hvíta húsinu. Donald Trump er með svítu á annarri hæð í Hvíta húsinu en frú Trump er hins vegar með tveggja herbergja aðstöðu á þriðju hæð en herbergin notaði áður móðir Michelle Obama í tíð Baracks Obama.
Bennett heldur því einnig fram að Melania Trump noti klæðnað sinn til þess að ögra eiginmanni sínum. Vill hún meina að frú Trump klæði sig í buxnadragtir þegar ósætti er í hjónabandinu.
Í júní 2018 vakti græni jakkinn með áletruninni: „I really don´t care, do u?“ eða: „Mér er alveg sama, hvað með þig?“ mikla athygli. Bennett vill meina að jakkinn hafi ekki átt að beinast að innflytjendum heldur dóttur Donalds Trumps, Ivönku Trump. Hún segir þær ekki vera nánar. Á frú Trump að hafa verið ósátt við hversu stórt hlutverk Ivanka Trump leikur í stjórn föður síns á meðan litið er á hana sem verðlaunagrip eiginmanns hennar.
Melania Trump fór á spítala í fyrra. Segir Bennett að veikindi frú Trump hafi verið mun alvarlegri en greint var frá. Að sögn vina var frú Trump búin að vera mjög þjáð fyrir aðgerðina og átti hún á hættu að missa nýra.