Fulltrúadeild Bandaríkjaþings hefur samþykkt að beita háttsetta ráðamenn í Kína viðskiptaþvingunum vegna meðferðar kínverskra stjórnvalda á úígúr-múslimum.

Er ritari Kommúnistaflokksins í Xinjiang-héraði sérstaklega nefndur, en úígúrar eru fjölmennastir í þessu héraði Kína.
Úígúr-múslimar í Kína eru markvisst sendir í það sem kínversk stjórnvöld kalla skóla en gagnrýnendur harðstjórnarinnar í Kína vilja fremur kalla fangabúðir. Markmið stofnananna er að „umbreyta öfgafullum hugsunarhætti úígúra“.
Öldungadeild þingsins og Bandaríkjaforseti þurfa einnig að samþykkja viðskiptaþvinganirnar.
Lengi vel vildu kínversk stjórnvöld ekki viðurkenna tilvist skólanna svokölluðu, en í kjölfar þess að fjölmiðlar fóru að rannsaka meðferð úígúra hafa þau tekið upp á því að bjóða völdum fjölmiðlum í heimsókn í stofnanirnar.
Í 11 mínútna langri umfjöllun BBC, sem horfa má á hér að neðan, má sjá aðstæður fullorðinna úígúra í skólunum, sem þeir mega þó ekki yfirgefa nema með sérstöku leyfi, auk þess sem skólunum virðast hafa verið sérstaklega breytt áður en fjölmiðlum var boðið í heimsókn.