Rýmdu jólamarkað vegna grunsamlegra manna

Árás í Berlín | 22. desember 2019

Rýma þurfti jólamarkað í miðborg Berlínar í gærkvöldi eftir að lögregla fékk tilkynningu um grunsamlegar mannaferðir á svæðinu. Auk þess var hætt við tónleika í kirkju við torgið vegna hættu sem talin var hafa skapast.

Frá aðgerðum lögreglum í höfuðborg Þýskalands í gærkvöldi.
Frá aðgerðum lögreglum í höfuðborg Þýskalands í gærkvöldi. AFP

Rýma þurfti jólamarkað í miðborg Berlínar í gærkvöldi eftir að lögregla fékk tilkynningu um grunsamlegar mannaferðir á svæðinu. Auk þess var hætt við tónleika í kirkju við torgið vegna hættu sem talin var hafa skapast.

Rýma þurfti jólamarkað í miðborg Berlínar í gærkvöldi eftir að lögregla fékk tilkynningu um grunsamlegar mannaferðir á svæðinu. Auk þess var hætt við tónleika í kirkju við torgið vegna hættu sem talin var hafa skapast.

Um er að ræða sama torg og hryðjuverkamaður gerði mannskæða árás á fyrir þremur árum þegar 12 voru myrt­ir og 56 særðust.

Samkvæmt þýskum fjölmiðlum yfirgaf fólk jólamarkaðinn í rólegheitum.

Lögregla greindi síðan frá því að grunsemdirnar væru ekki á rökum reistar en talið var að hegðun tveggja manna væri grunsamleg. 

Enginn var handtekinn en lögregla greindi frá því að annar hinna grunsamlegu manna héti svipuðu nafni og eftirlýstur maður.

mbl.is