Bandaríkjaforseti segir Írana hafa verið að gera áætlanir um árásir á fjögur bandarísk sendiráð þegar æðsti herforingi þeirra, Qaseum Soleimani, var ráðinn af dögum.

Aðspurður hvaða ógn hafi leitt til þess að ákveðið var að gera loftárás á herforingjann og lið hans í Írak sagði Trump: „Ég get uppljóstrað að ég held að það hefðu verið fjögur bandarísk sendiráð,“ í samtali við fréttastofu Fox News.
Þeir demókratar sem fengið hafa gögn um loftárás Bandaríkjanna á Soleimani og aðdraganda hennar segja hins vegar að þeir fái ekki séð að til hafi staðið að ráðast á nein sendiráð.
Mike Pompeo, innanríkisráðherra Bandaríkjanna, hefur einnig haldið því fram að árásir á bandarísk sendiráð hafi verið í bígerð þegar Soleimani var drepinn.