Mexíkóskur réttur af bestu gerð. Hér er upplagt að tvöfalda uppskriftina og bjóða stórfjölskyldunni í mat, því þetta er rétturinn sem allir elska.
Mexíkóskur réttur af bestu gerð. Hér er upplagt að tvöfalda uppskriftina og bjóða stórfjölskyldunni í mat, því þetta er rétturinn sem allir elska.
Chili con carne með avókadósalsa
- 1 laukur
- 2 stórir hvítlaukar
- ½ rautt chili
- ½ msk. ólífuolía til steikingar
- 400 g nautahakk
- 1 msk. reykt paprikukrydd
- 1 tsk. kanill
- ½ msk. kúmmen
- Salt og pipar
- 1 dós hakkaðir tómatar
- 70 g tómatpúrre
- 1 dl nautakraftur
- 1 dós svartar baunir
- 30 g dökkt súkkulaði
- 2 msk. rauðvínsedik
- Hrísgrjón
- Sýrður rjómi
Avókadósalsa:
- 2 þroskuð avókadó
- 1 lítill rauðlaukur
- Handfylli ferskt kóríander
- ½ rautt chili
- 1 lime
- 1 msk. ólífuolía
- Salt og pipar
Aðferð:
- Saxið lauk, hvítlauk og chili og steikið upp úr olíu á pönnu.
- Setjið nautahakkið út á pönnuna ásamt kryddum og steikið. Bætið hökkuðu tómötunum út á pönnuna ásamt púrré og nautakrafti. Látið malla í 10 mínútur.
- Setjið svörtu baunirnar út á pönnuna og smakkið til með súkkulaði, rauðvínsediki, salti og pipar. Látið malla á meðan þið undirbúið restina af máltíðinni.
- Sjóðið hrísgrjónin samkvæmt leiðbeiningum.
- Berið fram chili con carne með avókadósalsa, hrísgrjónum og sýrðum rjóma.
Avókadósalsa:
- Skerið avókadóinn í litla bita. Saxið rauðlaukinn smátt og kóríanderinn gróflega. Saxið chili smátt.
- Blandið öllu saman í skál og kreistið lime-safa út í og ólífuolíu. Smakkið til með salti og pipar.
Uppskrift: Spis Bedre