Hér kemur einn dásamlegur frá Gott í matinn. Við erum að tala um fisk sem er svo bragðgóður að þig á eftir að langa í hann aftur og aftur ...
Hér kemur einn dásamlegur frá Gott í matinn. Við erum að tala um fisk sem er svo bragðgóður að þig á eftir að langa í hann aftur og aftur ...
Gratíneraður ketófiskur með papriku og camembert
4 skammtar
- 800 g ýsa skorin í bita (7-800 g)
- 3 paprikur, skornar smátt (2-3)
- 1⁄2 blaðlaukur, smátt skorinn
- 250 ml rjómi frá Gott í matinn
- 1⁄2 askja smurostur með papriku
- 1 Dala-camembert, skorinn í bita
- 1 tsk. dijonsinnep
- 1 tsk. paprikukrydd
- 1⁄2 grænmetisteningur
- rifinn gratínostur frá Gott í matinn, góð handfylli
Aðferð:
- Hitið ofn í 180 gráður.
- Skerið ýsuna í bita og saltið aðeins.
- Leggið í smurt eldfast mót.
- Skerið grænmetið og setjið til hliðar.
- Bræðið saman í potti rjómann, smurostinn og helminginn af camembertostinum, ásamt dijonsinnepi, paprikukryddi og grænmetisteningi.
- Smakkið til með svörtum pipar.
- Hellið sósunni yfir fiskinn.
- Dreifið grænmetinu því næst yfir og toppið með rifnum osti og restinni af camembertostinum, skornum í litla teninga.
- Bakið í um það bil 20 mínútur eða þar til fiskurinn er eldaður í gegn og osturinn gullinbrúnn.
Uppskrift: Helena Gunnarsdóttir