Kvikmyndatónlist Hildar Guðnadóttur hefur farið sigurför um heiminn undanfarin misseri og náði hún hámarki, að minnsta kosti í bili, á óskarsverðlaunahátíðinni sem fram fór í nótt.

Hildur er fyrsta konan til þess að vinna verðlaunin í flokki frumsaminnar kvikmyndatónlistar síðan akademían sameinaði alla undirflokka tónlistarverðlaunanna árið 2000, líkt og útskýrt er í frétt CNBC.
Þar segir jafnframt að Hildur sé ein af aðeins sjö konum sem tilnefndar hafa verið í 84 ára sögu verðlauna í flokki kvikmyndatónlistar á hátíðinni, en slík verðlaun voru fyrst veitt á sjöttu óskarsverðlaunahátíðinni árið 1935.
Þá hafa aðeins þrjár af þeim konum sem tilnefndar hafa verið til verðlauna í flokki kvikmyndatónlistar farið heim með styttuna gylltu. Það voru þær Marilyn Berman, sem hlaut verðlaunin fyrir tónlistina í kvikmyndinni Yentl ásamt þeim Michel Legrand og Alan Bergman árið 1983, Rachel Portman fyrir tónlistina í kvikmyndinni Emma árið 1996 og loks Anne Dudley fyrir tónlistina í The Full Monty árið 1997.