Fyrrverandi leikarahjónin Brad Pitt og Jennifer Aniston mættu bæði í árlega Óskarverðlaunaveislu umboðsmannsins Guy Oseary aðfaranótt mánudags. Pitt og Aniston hafa verið dugleg að mæta á sömu viðburðina og í sömu veislurnar að undanförnu. Þrátt fyrir að margir voni að það þýði að þau byrji saman aftur virðist enn vera eitthvað í land.

Sjónarvottar Page Six segja að Aniston hafi óskað Pitt til hamingju með Óskarsverðlaunin sem hann vann fyrr um kvöldið. Þau voru þó ekki mikið saman í veislunni.
Pitt og Aniston voru ekki einu stórstjörnurnar í veislunni. Ofurparið Jennifer Lopez og Alex Rodriguez skemmtu sér á dansgólfinu. Stofnandi Amazon Jeff Bezos og kærasta hans Lauren Sanchez létu sjá sig. Leikararnir Courteney Cox, Laura Dern, Adam Sandler og Renée Zellweger voru einnig meðal gesta í stjörnuprýddri veislunni.