David og Victoria Beckham eru ein frægustu hjón í heimi. Fatahönnuðurinn og fyrrverandi kryddpían birti gamalt myndband af þeim hjónum á Instagram í vikunni. Þar reynir knattspyrnustjarnan fyrrverandi að útskýra af hverju hann varð ástfanginn af eiginkonu sinni.

„Ég get ekki nefnt neitt eitt. Það var allt, allur pakkinn,“ sagði Beckham þegar hann var spurður af kvikmyndagerðarkonu hvað það var í fari Victoriu sem hann heillaðist af. „Ég varð bara ástfanginn.“
„Mér?“ Sagði Victoria Beckham þá og svaraði eiginmaður hennar játandi.
Victoria Beckham greinir ekki frá hvenær myndbandið var tekið upp en af fötunum að dæma var það snemma í sambandi þeirra. Vekur David Beckham meðal annars athygli á klæðnaði sínum í athugasemd á Instagram en hann er bæði í dúnvesti og með skuplu á höfðinu.
„Ég held að þetta hafi verið á strákabandstímabilinu mínu,“ skrifaði Beckham við myndbandið. „Af hverju leyfðir þú mér að ganga í þessu Victoria Beckham?“
Beckham-hjónin kynntust árið 1997 og fögnuðu 20 ára brúðkaupsafmæli í fyrra. Þrátt fyrir þrálátan orðróm um skilnað eru þau enn saman og eiga saman fjögur börn.